10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í B-deild Alþingistíðinda. (79)
113. mál, kosningar til Alþingis
Sigurður Sigurðsson:
Mig stórfurðaði, satt að segja, þegar eg sá brt. þær, sem háttv. samþ.m. minn (E. A.) og háttv. 1. þm. Rvk (Sv. B.) hafa komið fram með. En þó að mér þætti allar till. furðulegar, þá undraðist eg þó mest brt. á þgskj. 451, því að hún fer langlengst, og tekur, eins og menn segja, algerlega steininn úr götunni. (Sveinn Björnsson: Má það ekki, hver á að detta um hann?). Eg hélt í fyrradag, þegar 7. gr. frumv. var feld, að þá væri hnúturinn algerlega leystur og að ekki yrði meira átt við það. að svo komnu, að rugla kjördæmaskipuninni.
En svo kemur háttv. 1. þm. Rvíkur (Sv. B). fyrstur fram með brt. sína n þgskj. 434, og skildi eg vel, að frá hans sjónarmiði séð, væri erfitt að sætta sig við það, sem orðið var, og að hann kysi að reyna að koma vilja sínum fram í einhverri mynd. (Sveinn Björnsson: Þessi till. er tekin aftur). Hún hafði ekki verið tekin aftur í gær, þegar hún kom fram. Annars væri réttast fyrir hlutaðeiganda, að taka allar þessar till. aftur, Svo að deildarmenn þurfi ekki að gera sér það ómak að fella þær. Það hefði verið einhver meining í því að ganga inn á, að Rvík hefði 3 þingmenn og að jafnframt væri lagt niður eitt kaupstaðar kjördæmið, t. d. Seyðisfjörður. En hitt er fráleitt að ætlast til, að þingmönnum verði fjölgað, til þess að verða að fullu við kröfum Reykvíkinga.
Eg þarf ekki að taka það upp, sem hér hefir verið margsagt, sýnt og sannað, að Reykjavík líður á engan hátt við það, þó að hún hafi ekki nema þessa 2 þingmenn sína. Málum Reykvíkinga hefir jafnan verið vel tekið hér í þinginu, að minsta kosti hefir málum þeirra að þessu sinni verið hrundið á leið með góðu geði af þinginu í heild sinni, og svo mun reynast framvegis. Ekkert kjördæmi landsins hefir borið annað eins úr býtum hjá þinginu og Reykjavík. Á eg þar sérstaklega við fjárveitinguna til hafnargerðarinnar. Það nær því engri átt að halda því fram, að Reykjavík beri skarðan hlut frá borði þingsins. Eg má, segja, að eg greip fram í fyrir háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) í gær, og benti honum á, að hér í deildinni sæti 14 þingmenn, sem búsettir væri í Rvík. Þó að allir þessir menn gæti að sjálfsögðu hagsmuna sinna kjördæma, svo sem vera ber, þá er því nú svo varið um því, sem orðnir eru mosavaxnir Reykvíkingar, að þeim rennur blóðið til skyldunnar, og styðja því mál bæjarins fremur en hitt. Því fer fjarri að Reykjavík verði illa úti hjá þinginu og þessi krafa er því á litlum rökum bygð.
Auk þess er það rétt, sem háttv. samþ.m. minn (E. A.) tók fram hér í deildinni fyrir skömmu, að Reykjavík nýtur bæði beint og óbeint ýmiskonar hagsmuna fram yfir aðra hluta landsins. Hér sitja embættismennirnir, hér eru skólarnir o. s. frv., o. s. frv. Af þessu leiðir, að Reykjavík nýtur meiri hagnaðar af landssjóðs hálfu en nokkurt annað kjördæmi landsins. En út í þetta skal eg ekki fara frekar að þessu sinni.
Um það, að fjölga þingmönnum, er ekki annað að segja en það, að það er hin mesta fjarstæða, sem ekki hefir við neitt annað að styðjast en þetta eitt, að fullnægja kröfum Reykvíkinga, án alls tillita til þess, hvort þær eru sanngjarnar eða ekki. Eg get ekki séð, að þingið ykist mikið að viti eða þekkingu þó að tveimur mönnum væri hætt við það. Það er reyndar sagt, að munur sé að mannsliðinu, og að betra sé að veifa röngu tré en engu, en í þessu falli get eg ekki tekið það með í reikninginn.
Eg held að þessi till. sé fram komin, meðfram af þeirri ríku tilhneigingu, sem ýmsir menn hafa — og háttv. Samþ.m. minn (E. A.) er ekki frí við heldur til þess að skapa stöður og bitlinga. (Bjarni Jónsson : Þetta má bíða þingmálafundanna). Eg vona að eg segi ekkert ljótt með því, þó að eg taki það fram, sem er á allra vitorði, að þessi tilhneiging, sem eg nefndi, er einkum ríkjandi og rótgrónust hjá Reykvíkingum.
Að svo mæltu vil eg leggja það til, að allar brt. verði feldar, eins og þær leggja sig. Það á bezt við, eins og málið liggur fyrir, og er samkvæmt þeirri atkvæðagreiðslu, sem fram fór hér í deildinni í fyrradag, þegar 7. gr. frumv. var feld. Úr því að svo fór þá, á það ekki við að vera að rugla í kjördæmaskipuninni að svo komnu, að minsta kosti ekki á þessu þingi.