15.07.1914
Neðri deild: 12. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (793)
22. mál, vegir
Bjarni Jónsson:
Það hefir verið talað hér svo mikið um »princip«. Eg vildi fá að vita hvaða »princip« þetta væri, hvort það væri »principium rationis sufficientis« eða eitthvert annað »princip« út í loftið.
Það hefir verið sagt í þessu máli, að landssjóður eigi annaðhvort að kosta viðhald allra vega eða engra. Hvað sem því líður, þá er mér kunnugt um það, að landssj. á að kosta viðhald póstvega og vildi eg þá spyrja háttv. þm., sem á móti þessu frumv. hafa mælt, hvar póstleiðin frá Ingólfsfelli liggur austureftir. Liggur hún meðfram veginum, eða eftir honum sjálfum? Sé svo, þá hlýtur landssjóður að eiga að kosta viðhaldið.
Eg get ekki leitt hjá mér það, sem háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) sagði, þar sem hann hélt því fram, að þessir vegir væri ekki handa Reykvíkingum. Mér finst það vera sama, hvort nautin byrja ferðina hér, eða þar eystra. Annar endi leiðarinnar er þó alla jafna í Reykjavík, og það ekki sá verri, því að þar eru nautin étin. Og hagurinn er ekki allur Árnesinga megin, það getur verið gott fyrir Reykvíkinga líka, að hafa naut úr Árnessýslu til þess að éta. Árnesingum þarf ekki að vera illa við umferðina um veginn, hún er þeim ekki í óhag, en þeim getur þótt hitt hart, að þeir, sem hafa sama gagn af veginum og þeir sjálfir, skuli ekki kosta viðhald hana til jafna við þá, enda veit eg ekki betur, en að flestir bæir telji sér það hagnað, að eiga sem greiðastan aðgang að viðskiftasvæði upp til sveita. Og gaman þætti mér að vita, hvort Reykingar og þingmenn þeirra telja það ekki nauðsynlegt þegar þeir fara að mæla með því að járnbraut verði lögð austur í sýslur. Og þó að það sé sitt hvað, vegur og járnbraut, þá er það þó eins að þessu leyti, að gagnið skiftist jafnt á milli bæjarins og héraðanna. Það mætti því til sanns vegar færa, að vér Reykvíkingar kostuðum að voru leyti viðhald á þessum vegi og öðrum, er oss liggja næstir hér um slóðir.
Eg vil, að kosin sé 7 manna nefnd í málið og að hún reyni að koma með almennar tillögur um málið. Ekki eingöngu að því er þessar sýslur snertir, heldur einhverjar almennar reglur, sem nota mætti um land alt, því að víðar getur staðið líkt á og hér.