31.07.1914
Neðri deild: 29. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (799)

22. mál, vegir

Frsm. meiri hl. (Bjarni Jónsson):

Þessi nefnd hefir haft til meðferðar tvö frv. um vegi. Annað þeirra var um viðhaldskostnaðinn á flutningabrautinni austur fyrir fjall, sem þm. Árn. og Rang. vilja létta af sýslunum og leggja á landsjóð.

Hitt frv. er á þskj. 49 og er um breyting á vegarstefnu vestur í Dölum og nýja flutningabraut þar.

Nefndin hefir ekki getað orðið sammála. Eg skal nú í fáum orðum skýra frá skoðunum meiri hlutana í þessu máli. Það er mikilsvarðandi mál, á hverjum viðhaldsskylda veganna eigi að hvíla, hvort heldur landssjóði eða sýslunum. Meiri hluti nefndarinnar lítur svo á, að réttast sé að taka upp þá reglu, að landið kosti viðhaldið á þeim vegum, sem eru samgönguæðar milli landshluta og héraða, en viðhaldskostnaður hvíli á sýslunum á þeim einum vegum; sem aðeins eru innan héraða flutningabrautir, svo sem er um veginn milli Hauga og Kláffoss í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Slíkum köflum er sjálfsagt að sýslurnar haldi við á eigin kostnað, enda þótt þeir í upphafi sé lagðir sem flutningabrautir á landssjóðskostnað. En hina vill nefndin að farið sé með eins og fjallvegi. En vegna þess að frv. háttv. þm. Árn. var aðeins bundið við einn veg, þótti meiri hl. nefndarinnar rétt að taka upp í frv. alla aðra vegi, sem fullgjörðir eru og sama máli gegnir um. Þessvegna hefir hún tekið upp vegina frá Borgarnesi til Stykkishólms og eina Fagradalsbrautina, sem öll er fjallvegur.

Eg þarf ekki að vera margorður um þessa stefnu nefndarinnar. Málið liggur svo ljóst fyrir. Það er ekkert annað um að ræða en það, hvort menn segja já eða nei við þessari stefnu. Að þessu lúta brt. meiri hl.

Eg gat við 1. umr. um málaleitun Dalamanna viðvíkjandi veginum frá Búðardal til Borðeyrar.

Þetta er þeim mikið áhugamál, ekki aðeins vegna þess, að samgöngur eru þar talsverðar, heldur aðallega af því, að þeir búast við að verða að kaupa sér sérstakan bát til flutninga frá Rvík, af því að strandferðaskipin muni eigi koma þar nægilega oft. Strandferðaskipin nægja þeim ekki, ef svo fer sem víst má telja, vegna þess hve sjaldan þau koma við á þessum stöðum. Þeir búast við að komast með þessu lagi betur í samband við Húnaflóabátinn með Breiðafjarðarbátinn og ferðirnar verði mun ódýrari, einkum ef ísar eru fyrir Norðurlandi. Frá þessu er í stuttu máli skýrt í nefndarálitinu. Móti þessu verður ekki komið fram með annað en spádóma um, að það muni vera rangt skoðað, en vegna þess, að eg býst við, að þessir spámenn hljóti að vera ókunnugri málinu en Dalamenn sjálfir, þá vænti eg, að þingið taki ekki tillit til þeirra. Eg hygg, að þeir menn sé betri spámenn, sem þekkja sínar eigin þarfir, en hinir, sem ekki hafa á öðru að byggja en hugmyndum, sem þeir búa sér til út í loftið.

Viðvíkjandi breytingum á vegarstefnunni í Dölunum þarf eg ekki að vera margorður, því að málinu fylgja ítarleg skjöl, bæði frá sýslunefnd, verkfræðingi og stjórnarráði. Eg skal geta þess, að nefndin var öll sammála um, að þetta mætti svona vera og líka, að bezt færi á því, sem verkfræðingur segir um þetta atriði, bæði um orðalag og annað. Þess vegna hefir nefndin slept því að halda í frv. öllum örnefnum, sem eg hafði haft í frv, upprunalega. Og hún vill að póstleiðin liggi framvegis um Hjarðarholt sem hingað til. Þótt frv. væri samþykt eins og það nú liggur fyrir,

þá verður í öllu farið eftir fylgiskjölununum.

Eg skal svo ekki orðlengja um þetta meira. Þetta er einfalt mál, og um brautina er óþarft að deila, vegna þess, að það er fullkomin nauðsyn, að hún komist á. Það er heldur ekki farið fram á nein fjárútlát fyrir landssjóðs hönd, heldur bara beiðst þess eins, að þessi vegur verði tekinn upp í tölu flutningabrautanna. Eg fæ því ekki skilið, að nokkrum þeim geti verið það áhugamál, að vera þessari sýslu svo til meins, að þessi viðskifta-æð komist ekki á.