31.07.1914
Neðri deild: 29. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (808)
22. mál, vegir
Guðmundur Hannesson:
Háttv. þm. Dal. (B. J.) spáði því einu sinni á dögunum, þegar andinn kom yfir hann hér í deildinni, að minni hlutinn myndi altaf hafa rétt fyrir sér. Hann hefir þá víst órað fyrir vegalögunum. Nú hefir hann haldið langa ræðu út í loftið, sem var ólíku lengri en nefndarálit minni hlutans, og skal eg ekki lengi elta ólar við hann.
Húnaflóabáturinn hefir aldrei verið neinn, sem það nafn verði gefið, er ekki neinn og ekki líkur til þess, að hann verði neinn í næstu framtið. Vélarbátaferðir til Ísafjarðar verða að litlu gagni, þegar ís liggur við Horn og teppir allar ferðir tímunum saman. Og þegar um það er að ræða, hvað eigi að koma í staðinn, þá hefi eg litla trú á Búðardal eða Borgarnesi. Það dugir ekki annað, en að sýslan eigi birgðir í sínum eigin kauptúnum, eða jafnvel heima á hverjum bæ.
Háttv. 2. þm. Rang. (E. P.) og fleiri hafa talað um það, að vegirnir hefði verið illa gerðir í upphafi, þegar þeir vóru afhentir sýslunum. Það var leitt, að hann hélt þessu ekki fram í nefndinni, þegar verkfræðingurinn var þar til viðtals. Flóabrautin var einmitt mjög vönduð, að litlum kafla undanteknum, (grýtt), en fæstar flutningabrautir eru grýttar. Holtavegurinn var lakari en hann er svo erfiðar viðureignar frá náttúrunnar hendi, að ekki var hægt að gera hann öðruvís úr garði en þetta. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) gerði mikið úr því, hve vegaviðhald væri dýrt hér á Suðurlandi, og kvað nauðsyn að hjálpa mönnum til að bera það, helzt að landið gerði það. Það vakir fyrir honum, að nýr skattur yrði lagður á landsmenn til þess að halda við vegunum. Halda menn, að það væri sparnaðarvegur, að reyta þannig tekjur landssjóðs á dreif út um alt land, borga af þeim innheimtugjald og senda síðan menn héðan úr Reykjavík í allar áttir, til þess að leita uppi vegaspotta, sem úr sér væri gengnir og gera við þá. Skilur nokkur, að annað eins geti komið til mála? Eg held ekki.
Flest alt var rangt, sem sagt var um Húnvetningabrautina. Eg get sagt hv. þingmönnum, sem ekki vita það, að Húnvetningabrautin er enn ekki til nema stuttur spotti. Þjóðvegur liggur að vísu um sýsluna, en er miklu verri, en hann hefir verið sagður hér. En næstu árin verður brautin lögð. Verður þá áframhaldandi akfær þjóðvegur eftir allri sýslunni í heild, alla leið vestur í Hrútafjörð. Eg hafði í nefndarálitinu miðað við það, að akvegur yrði úr Borgarnesi norður, enda er sjálfsagt, að akvegur sé gerður yfir þessa leið svo fljótt sem auðið er. Leið allra Norðlendinga lægi þá eftir þjóðvegi og akbraut Húnavatnssýslu, svo að þeir yrði fyrir meiri átroðningi af utanhéraðsmönnum á vegum sínum en nokkru sinni sveitirnar hér syðra.
Rétt var það alt, sem eg sagði um Borgarfjarðarbraut, og sömuleiðis það, sem eg sagði um strandferðirnar í nefndaráliti mínu. Það má ef til vill færa upphæðina upp í 10–15 þús. Vextirnir af því fé, sem gengið hefir til vega í Árnes- og Rangárvallasýslu umfram önnur héruð, nægja einnig til þess að vega móti þeirri upphæð!
Eg geri nú ráð fyrir því, að allir hv. þm. hafi gert sér það ljóst, hvað hér er um að ræða, en ef nokkur skyldi halda, að þetta nái ekki lengra en til tveggja eða þriggja vegaspotta, þá vil eg minna menn á það, áður en gengið er til atkvæða, að hér er að ræða um mesta stórmál, sem liggur fyrir þessu þingi, að því er fé snertir. Eg býst jafnvel ekki við, að styrjöldin baki landinu eins mikil fjárútlát, því að ef einu sinni er gengið út á þessa braut, þá verður ekki staðar numið. Til þess að halda við þessum eina vegarspotta í Árnessýslu, færi 3–4000 kr. á ári, og hvað yrði það á öllum flutningabrautum og þjóðvegum landsins? Það er auðsætt, að ef á að demba öllu viðhaldinu á landssjóð, þá verður þess skamt að bíða, að það hlaupi upp á 100 þús. krónur á ári, ef farið er eftir útreikningi landsverkfræðings, sem áætlar viðhaldið minst 50 krónur á kílómeter að meðaltali. Hér er að tala um að aðhafast eins dæmi, því að það tíðkast ekki mér vitanlega í nokkru af nágrannalöndunum, að demba viðhaldi allra þjóðvega á ríkissjóð. Það á að varpa burtu grundvelli vegalaganna, sem er í fullu samræmi við löggjöf annarra þjóða. Það var sagt af einhverjum, að bæði meiri og minni hl. hefði mikið til síns máls. Það virðist mér ekki. Meiri hlutinn hefir í þessu máli enga heilbrigða ástæðu til brunns að bera, nema þetta, að viðhaldið sé héruðunum dýrt, en það yrði þeim enn þá dýrara, ef á þau yrði að leggja aukinn skatt til landssjóðs til þess að borga þetta.
Eg vildi brýna þetta fyrir mönnum ennþá einu sinni, að það er ómögulegt að bera á móti því, hvernig sem það er teygt og togað, að hér er að ræða um stefnubreytingu, sem hefir stórkostleg útgjöld í för með sér fyrir landasjóð og þessi breyting er óhagsýn og ekki réttvís.