31.07.1914
Neðri deild: 29. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (810)
22. mál, vegir
Matthías Ólafsson:
Háttv. 2. þm. Rangv. (E. P.) er vanur að vera gætinn og orðvar, en hann brá dálítið út af því áðan og fór að snúa út úr fyrir mér. Hann sagði, að eg hefði sett þetta mál í samband við ófriðinn ytra, en það gerði eg ekki, heldur við afleiðingar af ófriðinum. Eg talaði um ákvæði til þess að takmarka útgjöld landssjóða til þess að koma í veg fyrir þær. Háttv. þingm. hefir bara endaskifti á orsök og afleiðing.
Það er mikið talað um það, hvað þessar sýslur eystra borgi mikið í landssjóð, og jafnvel gefið í skyn, að það ætti að vera 1/8 af tolltekjum landsins, en því fer fjarri að svo sé. Það er ekki einu sinni 1/20. (E. P. og S. Sig.: Þingm. veit ekkert um þetta). Ójú. Þeir kaupa ekki mikið af kolum og salti og öðru slíku, sem til sjávarútvegs þarf, og auk þess hafa þeir ýmislegt, sem annars ekki fæst við sjó, eins og mjólk og kjöt, sem sparar þeim að kaupa útlendar vörur, sem tollur er á. Eg hefði ekki minst á þetta, ef ekki hefði verið búið að skýra svona rangt frá því, en sannleikurinn er sá, að íbúar þessarra héraða eru þeir, sem borga tiltölulega minst í landssjóð. (Sig. Sig.: Þetta er sagt út í loftið). Það er hægt að sanna þetta, nema þeir sé því meiri óhófsmenn, og það eru þeir víst ekki. Eg skal koma að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.), því að hann var líka að hnýta í mig. Eg held því fram, að það eigi að spara útgjöldin sem mest að unt er.
Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) talaði um það, að þessi lög kæmi ekki í gildi fyrr en á næsta ári, en hve lengi geta menn búist við, að afleiðingar ófriðarins vari? Sjálfsagt lengur en ár, og þá virðist óþarfi að vera að auka útgjöld landssjóðs samtímis því að verið er að takmarka þau.
Eg get sagt háttvirtum 1. þm. Árn. (S. S.) það, að eg veit meira um Árnessýslu, en hann hyggur. Eg veit það, að hreppafélögin þar, þó að stór sé, hafa ekki stórum meiri útgjöld til sýslusjóða en gerist á Vesturlandi. Það leikur á þetta 1000 kr. og þar í kring og það er ekkert meira en það, sem sumir litlir hreppar á Vesturlandi verða að borga. Og þarna eru þó stór bú fyrir austan, og ann eg þeim þess vel, en þá eiga þeir ekki að telja eftir heldur það sem þeir borga. Og lítið hafa þeir gert að vegabótum, og er það eins og alt sé látið drasla til þess að koma því á landssjóð í sem mestu ólagi. Ennfremur er mér kunnugt um það, að Árnesingar hafa kostað óvenjulitlu til fræðslumála, ekki nema þetta 6–700 kr. á móti 2 þús. kr. og þar yfir fyrir vestan. Eg hefi heyrt, að í stórefnuðum hreppi eystra hafi ekki verið jafnað niður nema 4,500 kr., en í hreppnum þar sem eg átti heima í vóru það 6 þús. kr. (Sig. Sig.: Þar eru líka verzlanir). Rétt er það, en margir stórbændur jafnast á við þær, og þessi viðleitni á að smeygja af sér gjöldum er ekki rétt. Þegar búið er sama sem að gefa mönnum vegina, þá ætti þeir líka að geta haldið þeim við.