25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í B-deild Alþingistíðinda. (822)

34. mál, friðun fugla og eggja

Einar Jónsson:

Eg hefi beðið um orðið á undan háttv. framsm. (B. J.), þar sem hann er framsögum. í þessu máli, aðallega vegna þess, að eg vil að umræðurnar verði sem styztar, en einnig vegna þess, að eg hygg honum sé betra að heyra ræður annarra, áður en hann tekur sjálfur til máls. Ennfremur bað eg um orðið til þess að drepa á nokkur atriði í ræðu háttv. 1. þm. Árn. (S. S.).

Hann segir, að erninum sé altaf að fækka í landinu. Eg trúi því vel, að hann hafi horft á það, því að það hefi eg sjálfur gert. En þar, sem hann heldur, að ekki sé nema 7–8 pör eftir, þá hygg eg, að þar sé nokkuð langt farið. En því máli hans til stuðnings, að þessum fugli sé að fækka, get eg nefnt það, að þegar eg var ungur, sá eg örn oftast á hverjum degi, en síðan eg varð eldri sé eg hann sjaldnast oftar en einu sinni á ári.

Eg verð að draga í efa, að rétt sé að segja, að oss beri eins að halda í örninn eins og geirfuglinn. Mér er ekki kunnugt um, að geirfuglinn hafi verið ránfugl eða yfir höfuð orðið valdandi nokkurs tjóns. Aftur á móti hefi eg heyrt getið um, að hann hafi verið nytsemdar fugl. Það sem vakti fyrir nefndnefndinni var í einu orði það, að þeir fuglar, sem væri ránfuglar og skemdi eigur manna, en gerði hinsvegar ekkert gagn, ætti ekki skilið, að hlífiskildi væri haldið yfir þeim. Slíkum fuglum er skylt að útrýma. Í nefndinni var eg fús til samkomulags við háttv. þm. Dal. (B. J.) um þetta atriði, vegna þess, að hann skýrði frá því, hvern skaða örninn hefði unnið í vor þar vestur frá, og hygg eg, að hann hafi sagt satt og rétt frá eins og hann er vanur. Eg get ósköp vel skilið, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) sé það ekkert áhugamál að útrýma erninum, því að hann á engin lömb og hefir líklega aldrei átt. (Sigurður Sigurðsson: Hvernig getur þm. vitað það ?). En eg á lömb, og þó að eg hafi hingað til haft efni á að missa eitt og eitt, þá vil eg ekki ala örninn á lömbunum mínum. Eg get vel skilið, að menn hugsi til þess með söknuði, að sjá aldrei fuglakonunginn oftar, því að það geri eg hálft í hvoru líka. En eg álít þó, að ef hann er einungis konungur fuglanna til þess að vinna skaða, þá eigi hann að deyja. Eg hefi heyrt sagt, að örninn hafi stundum hremt börn, og það veit eg með sanni, að hann hremmir lömb, hvenær sem hann sér sér færi. Eg verð þess vegna að halda, að hann hafi fyllilega til óhelginnar unnið.