25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (823)

34. mál, friðun fugla og eggja

Framsögum. (Bjarni Jónsson):

Mönnum eru hér mislagðar hendur eins og oft vill verða. Eg hefi aldrei fyrr orðið þess var, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) væri brjóstbetri maður en eg. Man eg eftir því, að hann hefir viljað slátra öllum skáldum og listamönnum landsins; en nú er skift svo um, að hann vill jafnvel taka ernina undir sína breiðu arnarvængi til þess að skýla þeim. Eg gæti betur skilið, að hann hafi í raun og veru gengið í endurnýjung lífdaganna og sé orðinn svo brjóstgóður maður sem hann lætur, ef hann vildi líka taka alla yrðlinga undir verndarvængi sína. Það er kunnugt, að tóunni fækkar mikið á Íslandi fyrir utan þá staði þar sem hún er ræktuð. Eg vildi, að hann sæi um, að frumv. yrði lagt fyrir þingið um, að ekki mætti drepa tóur næstu 10 árin. Þá myndi eg fremur viðurkenna brjóstgæðin. Eg játa, að örninn er konungur fuglanna, háfleygt dýr og skarpskygnt og mikill andi, sem svifur yfir vötnum Árnesinga er »fiskar vaka þar í öllum ám« eins og Jónas Hallgrímsson kvað. En refurinn er líka mikið og merkilegt dýr, ráðkænn og slunginn, yfirleitt vel fallinn til þingmensku, ef eg þekki rétt. (Eitthvert muldur í sessunaut þm. (M. Ól.), en svo lágt, að það heyrist ekki út um salinn). — Þegar gegnt er fram í, þá vildi eg að það kæmi málinu á einhvern hátt við, svo að tækifæri gæfist til þess að sýna þá hæversku, að taka það til greina. — Það gleður mig, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) er orðinn svo brjóstgóður, að hann vill halda hlífiskildi yfir þessum fugli, sem skáldin nefna oftast og er sannnefndur skálda og kvæðafugl. En undarlega mundi það koma mér fyrir, ef síðar kæmi í ljós, að hann væri óvinveittari skáldunum sjálfum en skáldafuglinum. Nema hann hugsi sem svo, að ef vér drepum öll skáld, sem nú eru uppi, þá sé rétt, að vér geymum örninn til þess, að hann verði yrkisefni ófæddra skálda, sem upp vaga undir nýjum og betri skilyrðum.

Háttv. þm. (S. S.) sagði, að eg hefði borið þetta frv. fram fyrir bænastað kjósenda minna. Það er hverju orði sannara. En eg hefi enga dul dregið á það, að eg er þeim sammála um, að krafa þeirra sé sanngjörn og réttmæt. Það lifir sjálfsagt nóg af erninum fyrir því, þó að hann verði ófriðaður um 5 ára skeið. Því að það er aðgætandi, að nefndin var nærri því eins brjóstgóð og 1. þm. Árn. (S. S.) þar sem hún hefir ekki viljað ófriða arnareggin. Þó að leyft sé að skjóta geldfugl, eða fuglinn, þegar hann hefir ungað út eggjum sínum, þá er það ekkert voðaleg ófriðun.

Eg get verið sammála háttv. þm. (S. S.) um það, að þetta er ekkert fjarskalegt stórmál á þá leið, að frelsi og velferð landsins sé í voða, ef þessum fugli fjölgar. Eg vona líka, að háttv. þm. líti ekki svo á, að þessir feigu ernir dragi alt líf og alla velferð landsmanna með í flugnum, þegar þeir falla fyrir þeim dauðaskeytum, sem á að heimila fólki að senda þeim. Eg ætla ekki að biðja mér allþarflega liðs, því að eg býst við, að þeir sem greiddu frv. atkv. síðast geri það einnig nú, jafnvel þó að andi þingmannsins drægi arnsúg í flugnum, þegar hann réð mönnum frá að gera það.