25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 867 í B-deild Alþingistíðinda. (829)
34. mál, friðun fugla og eggja
Matthías Ólafsson:
Háttv. þm. Dal. (B. J.) sagði, að eg hefði verið að brigsla honum um að bera fram frv. að vilja kjósenda sinna. Þetta er ekki rétt skilið. Hitt sagði eg, og það stend eg við, að mig furðar á því, að háttv. þm. (B. J.) skuli láta kjósendur sína fá sig til þess að bera fram á þinginu aðrar eins firrur og þetta frumvarp er. Hann var eitthvað að minnast á héra — og mintist jafnvel á tvífætta héra að því er mér skildist. Þetta er nú ekki svo fjarri sanni, sem maður skyldi halda. Hérarnir eru taldir fremur kjarklítil dýr — og mér virðist þeir háttv. þingmenn, sem af hræðslu við kjósendur fá sig til þess að flytja slíkar firrur, ekki óskyldir þessum hugprúðu(!) dýrum — eða með öðrum: tvífættir hérar.
Háttv. þm. (B. J.) gramdist það mjög, að við háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) skyldum vera á sama máli hér. Það er nú svona, að eg hefi ekki þann sið, að leggjast á móti réttu máli fyrir það eitt, að maður, sem hefir verið mér mótstæður í öðrum málum, er með því. Eg skal ekkert um það segja, hvernig háttv. þm. Dal. (B. J.) hugsar í þessu efni. Hann gerði okkur þá æru, að kalla okkur Heródes og Pílatus — án þess þó að kveða upp úr með það, hvor okkar væri Heródes og hvor Pílatus. (Bjarni Jónsson: Þeir mega skifta með sér störfum sjálfir). En þá vantar þriðju persónuna, sem sætti þá. Það er líklega Kristur frá Vogi, þótt innrætið virðist harla ólíkt Kristi frá Nazaret.
Eg stend við það, að mér virðist það hverflyndi, ef háttv. þingmenn, sem friðuðu örninn í fyrra, færi nú að greiða atkvæði með ófriðun hans. Og eg trúi því ekki fyrr en eg tek á því.
Háttv. þm. (B. J.) kannaðist við það, að skáldin mundu sakna arnarins og síteraði Jónas Hallgrímsson:
»Klógulir ernir yfir veiði hlakka«.
Hann var í því sambandi að tala um vötnin í Árnessýslu, en eg held að hv. þm skjátlist í þessu. Jónas mun hafa átt við Rangárvallasýslu. Annara vænti eg, að þetta hégómlega frv. verði felt. Oss er það miklu meira tjón að vera án arnarins en þótt hann tæki eitt horlamb kanske tíunda hvert ár.
Eg gæti fallist á till. háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.), að landið borgaði verð þessarra fáu horlamba, sem örninn tæki, ef glöggar skýrslur fengist um, hve mörg þau væri. Það færi þá bezt á því, að leidd væri þingvitni um það vestur í Dalasýslu. Það mundi borga sig mikið betur en að útrýma hér á landi konungi fuglanna. Það er að vísu satt hjá háttv. þingm., að hreiður arnanna eru friðuð, en það kemur að litlu liði. Eg býst ekki við, að margir ungar komi úr eggjunum, þegar búið er að skjóta makana.