25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í B-deild Alþingistíðinda. (830)
34. mál, friðun fugla og eggja
Sigurður Sigurðsson:
Eg hélt ekki, að það yrði svona miklar umræður um þetta mál, og sízt af öllu, að oss yrði gefið tækifæri til að skemta oss eins vel og raun er á orðin.
Það er ekki miklu að svara af því, sem fram er komið, en þó get eg ekki stilt mig um það að gera tvær athugasemdir:
Rauði þráðurinn í ræðu háttv. 1. þm. Rang. (E. J.) var sá, að eg legðist á móti þessu frv. vegna þess, að eg ætti engin lömb. Eg skaut því þá fram, að hann hefði enga hugmynd um, hvort svo væri eða ekki.
Annars er ástæðulaust að svara þesskonar sökum nokkuð frekara. Þau bera sönnunargildi sitt svo ljóst í sjálfu sér, að ekki þarf að skýra það nánara.
Eg hefi ekki mikið að segja út af ummælum háttv. þm. Dal. (B. J.). Hann bar mér það á brýn, að eg væri óvinveittur skáldunum — vildi þau helzt ófriðuð í stað arnarins. Eg veit ekki, hvaðan honum kemur sá vísdómur. Eg hefi aldrei sagt neitt í þá átt. Hitt veit eg, að hann kannast við, að það eru ekki allir skáld, þótt þeir yrki, eða jafnvel þótt þeir njóti skáldastyrks.
Annars skal eg ekki fara langt út í þá sálma, því að það kemur ekki þessu máli við.
En á það vil eg minna háttv. þm. Dal. (B, J.), að verði örnunum útrýmt, þá missa skáldin eitt af yrkisefnum einum. Það gæti þá ef til vill orðið til þess, að ástæða væri til að draga dálítið af skáldastyrknum fyrir bragðið.
Það hefir verið sagt, að vér ættum að farga öllum skepnum, sem geri oss tjón. En hvar á þá staðar að nema? Það er síður en svo, að örninn sé ofarlega í tölu þeirra dýra, sem vinna oss tjón. Sá skaði, sem hann gerir, er afarlítill í samanburði við ýms önnur dýr, svo sem mýs, rottur o. o. fl. Og húsdýrin svo nefndu gera oss oft mikinn skaða, t. d. kötturinn. Eg las það nýlega í blaði, að hundur hefði rifið á hol kindur upp í Mosfellssveit. Og þó er hundurinn eitt af vorum þarfaskepnum, og naumast mun háttv. þm. Mýramanna (J. E.) vilja ófriða hundinn, þó að það hafi komið fyrir, að hann rifi skepnur á hol.
Þessi mælikvarði er því einskis nýtur. Eg skal svo ekki fara lengra út í þessi mál. Það eru þegar færð nóg rök að því, að þetta frv. á ekki að ganga fram.