16.07.1914
Neðri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (838)

27. mál, forðagæsla

Þorleifur Jónsson:

Eg hélt satt að segja, að það yrði ekki á þessu þingi tekið til bragðs að lappa upp á forðagæzlulögin. Mér er það reyndar kunnugt, að víða um land er töluverð óánægja með lögin, eins og þau vóru samþykt á síðasta þingi, og töluverður óhugur í almenningi út af sumum ákvæðum þeirra. Það hefir jafnvel komið fram áskorun í mínu kjördæmi um að fá lögin afnumin. En eg býst við, að ekki þýði mikið að fara fram á það hér á þingi nú, því mér er kunnugt um, að margir háttv. þingdeildarmenn álíta þessi forðagæzlulög alveg ómissandi, eg held þau sé frá sumra sjónarmiði hér nokkurskonar Brama-lífs-elexir, eða allsherjar meðal við öllum meinum búnaðarins. Eg er þó í sannleika hræddur um, að lögin nái seint tilgangi sínum, eins og nú er frá þeim gengið. Þau eru bæði kostnaðarsöm og svo get eg ekki skilið, að þau geti komið í veg fyrir afleiðingar af vondum árum hér á landi. — Jafnvel þótt menn hafi víða risið öndverðir gegn þessum lögum, þá hafa menn þó víðast, þar sem eg þekki til, komið nafninu á að kjósa forðagæzlumenn. En það er áreiðanlega skoðun bænda, að ekki sé kostandi miklu upp á slíkt eftirlit og því verða þessi lög sama pappírsgagnið, eins og gömlu horfellislögin. Jafnvel Torfi í Ólafsdal, sem hefir sjálfsagt flestum mönnum meira hugsað um þessi efni, hefir nýlega skrifað ritgjörð um forðagæzlulögin. Virðist honum þingið hafa gengið oflangt í að valdbjóða þetta eftirlit, og telur mikil vandkvæði á framkvæmd slíks valdboðs. Hann segir á einum stað: »Það sem þingið gerði 1913, getur alls ekki komið í veg fyrir fénaðarfelli«. Þegar. þessi maður hefir nú

kveðið upp þann dóm, að lögin geti ekki komið í veg fyrir fénaðarfelli, hví skyldum vér þá vera að lappa upp á þau nú? (Sigurður Sigurðsson: Honum þykir þau ganga ofskamt). Ef til vill ofskamt að sumu leyti, en að öðru leyti oflangt.

Þar sem ekki er hægt að fá því framgengt, að lögin frá 1913 verði afnumin, vil eg ekki leggja lið mitt til þess að lappa upp á þau. Réttara væri, að stjórnin tæki forðagæzlumálið til rækilegrar meðferðar. Eg held, að þessi viðbót sé óþörf og ætti ekki að ná fram að ganga á þessu þingi.