16.07.1914
Neðri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (839)

27. mál, forðagæsla

Guðmundur Eggerz:

Mér þætti gaman að fá að vita, hvaðan sú reynsla er fengin, að hreppsnefndir hafi alment ekki viljað láta kjósa forðagæzlumenn. Þeir, sem knúðu þessi lög hér í gegn um deildina í fyrra, hafa ekki gætt þess, að ákveða, hvenær kosning skyldi fram fara. Úr þessu hefir stjórnarráðið bætt með því að skrifa sýslumönnum og leggja fyrir þá að láta kosningu fara fram í júlímánuði. Það er nú júlímánuður, og þessvegna er mér ómögulegt að fá það inn í mitt höfuð, að nokkur reynala sé fengin í þessu efni. Eg hefi, þar sem eg þekki til, alls ekki orðið var við neinn mótþróa móti þessum lögum. Að öðru leyti vil eg athuga það við þetta frumv., sem hér liggur fyrir, að svo gæti farið, að margir menn í sama hreppnum yrði heylitlir að áliti forðagæzlumanns, og getur það þá orðið hættulegt að ákveða, að hreppsnefndin skuli ábyrgjast alt fóður handa þeim mönnum. Annars skal eg ekki fara út í einstök atriði nú, en hræddur eg um, að þetta yrði pappírslög, sem auk þess bera á sér þvingunarmarkið. Og það er ekki gott né heppilegt að ætla sér að lagfæra það, sem aflaga fer, með þvingun. Það er álit margra manna, að bændum lærist, að þeir hafi bezt upp úr skepnum sínum með því að fara vel með þær. Á það mætti leggja meiri áherzlu, að kenna mönnum að hirða skepnur sínar vel, en leiðin til þess er ekki þvingunarlög ofan í þvingunarlög. Eftir því, sem eg þekki til, held eg, að mér sé óhætt að segja, að hafi menn verið óánægðir með lögin í fyrra, þá mundu menn verða ennþá óánægðari ef þessi viðbót næði fram að ganga. Auk þess er það mjög svo ískyggilegt, að vera altaf að gera breytingar á spánnýjum lögum. Vildi eg helzt óska, að ekki yrði haft svo mikið við þetta frv. að setja það í nefnd, og tel heppilegast að drepa það nú þegar.