27.07.1914
Neðri deild: 22. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (857)

31. mál, þingsköp Alþingis

Framsögum. (Einar Arnórsson):

Eg get verið stuttorður um þetta mál, því að nefndin, sem kosin var til að athuga það, hefir orðið öll á einu máli um að ráða háttv. deild til að samþykkja frumvarpið. Breytingar þær, sem nefndin leggur til. að gerðar sé á frumvarpinu, eru öllum ljósar og er því óþarfi að fara um þær mörgum orðum. Sumar breytingarnar á þingsköpunum leiða beint af hinni væntanlegu stjórnarskrárbreytingu. Aðrar eru aðeins gerðar til skýringar, en ekki til að breyta þingsköpunum að efni til; Svo er t. d. um 1. breyt.till.

Við 2. gr. frumv. sem fjallar um 10. gr. þingskapanna, hefir nefndin leyft sér að koma fram með breyt.till. um það, að forsetar þingsins hafi leyfi til að annast sjálfir útgáfu þingtíðindanna, því að það virtist öllum nefndarmönnum fullhart að taka þann rétt af þeim, og hefir þetta atriði eigi þótt svo stórvægilegt, að ástæða væri til þess, að nefndin klofnaði um það.

Það varð því ofan á í nefndinni að láta forseta, svo sem áður, hafa á, hendi eða sjá um útgáfu þingtíðindanna, ef þeir vildi sjálfir vinna verkið. En nefndinni þótti rétt að setja hámark fyrir því, hve mikið skyldi greiða fyrir hverja prentaða örk í ritstjórn, og er það 8 kr. Hámarkið er sett svo hátt, sérstaklega af því, að nefndarmenn gerðu ráð fyrir því, að útgáfunni yrði framvegis hagað svo, að hvert mál yrði fyrir sig og öll meðferð þess í deildunum, en ekki eina og verið hefir hin síðari þing, að farið sé um efnisröðun aðeins eftir fundum. Hægara þykir að nota þingtíðindin þannig úr garði ger. Svo hefir nefndin og lagt það til, að hámark borgunar fyrir samning og prófarkalestur efnisyfirlits verði lögákveðið 50 kr. á örkina. Hægt að fá nóga hæfa menn fyrir þá borgun.

Þá er 7. breyt.till. nefndarinnar, er fer fram á það, að 1. málsgr. 16. gr. þingskapanna breytist þannig, að við óhlutbundnar nefndarkosningar teljist auður seðill sem greitt atkvæði, ella ekki. Þetta ákvæði er nánast til skýringar. Sú venja, sem um þetta hefir verið undanfarin þing, að auður seðill teldist annars greitt atkvæði, virðist stríða á móti 42. gr. þingskapanna; að minsta kosti er hún gagnstæð hlutarins eðli. Eðlilegast að líta svo á, að sá, er skilar auðum seðli, hafi alls eigi greitt atkvæði, því að hann hefir eigi neytt atkvæðisréttar síns.

Aðrar breyt.till. nefndarinnar eru orðabreytingar, og þarf eg ekki að gera grein fyrir þeim.

Í nefndarálitinu er nokkuð vikið að útgáfu þingtíðindanna og bóka- og Skjalasafni þingsins: Í Skjalasafni þingsins er geymd skjöl þingsins, nefndarálit og fleira, málaleitanir til þingsins og erindi og önnur skjöl, er þingið varða. Þetta skjalasafn þarf að vera í góðri röð og reglu, til þess að hægt sé að nota það. Mikið af skjalasafni þingsins er nú komið á landakjalasafnið og er sá hlutinn í góðri reglu. Hér eru geymd skjöl þingsins, þau sem 10–12 ára eru og þaðan af yngri. Sumu er þar raðað, sumu ekki. En auðvitað er bráðnauðsynlegt að koma góðu. skipulagi á safnið.

Bókasafni þingsins er ætlað að geyma þær bækur, sem þingmönnum er þörf að nota við störf sín á þinginu, aðrar ekki. Mikið af bókasafninu mun vera gjafir einstakra manna, en þó hefir talsvert verið keypt af bókum. Ekki veit eg, hverir hafa á hendi bókakaup fyrir þingið, en kunnugt er mér um það, að milliþingaforsetarnir hafa keypt hitt og þetta, sem alls ekki á heima í safni þingsins, t. d. jafnvel rit fagurfræðilegs efnis, jafnvel skáldsögur; og veit eg, satt að segja, ekki, hvað þingið á við það að gera. Það, sem þingið þarf að eiga af bókakosti, er öll hin helztu rit um íslenzka stjórnfræði, svo sem Lovsamling for Ísland, Stjórnartíðindi og Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands, og þau rit á þingið. En samt brestur mjög á um hirðusemi í samhaldi þeirra íslenzkra rita, er stjórn landsina skifta. T. d. vantar þingið Lögbirtingablaðið. Og verður það væntanlega útvegað bráðlega, ef hægt er. Bankareikningum og ýmsu slíku smælki, sem þó getur verið nauðsyn á að hafa, og þinginu berst árlega, hefir alls eigi verið haldið saman. Svona má lengi telja. En jafnframt þarf þingið að eiga kost á því að sjá löggjöf annarra þjóða, og þarf því að eiga helztu lögbækur allra landa í Norðurálfu, að minsta kosti allra germanskra þjóða, t. d. borgaralagabálkinn þýzka, helztu lög Austurríkismanna, Þjóðverja og Svissa. Sömuleiðis góð rit um hverja grein þjóðhagsfræðinnar, hagskýrslur annarra landa í öllum greinum, skattskýrslur, tolla, landbúnaðar, verzlunar, sjávarafurða-skýrslur o. s. frv. Ennfremur 2–3 merk alfræðirit, eins og t. d. Encyclopedia Britannica, Handbuch der Staatswissenschaften eða þvílík rit.

Þetta, sem nú var talið, er sagt til leiðbeiningar fyrir þá, sem um safn þingsins sjá framvegis. Það verður ekki gert í stuttu máli að telja upp öll þau rit, sem þingið þarf að eiga, en eftir þessum grundvallarreglum, er nú vóru taldar, á að fara við bókavalið.

Í nefndarálitinu er vikið að því, að prentunarkostnaður á þingtíðindum og þingskjölum hafi verið óhæfilega hár upp á síðkastið. Eg hefi engu hér við að bæta. Núverandi forsetum og skrifstofu til lofs skal eg geta þess, að þessu hefir nú verið komið í lag með því að láta prentsmiðju þá, sem hlut á að máli, gera reikningsskil á hverri viku. Á síðari þingum hafa reikningsskil eigi verið gerð fyrr en seint og síðarmeir, á sumu eftir þing, og hefir þá, sem vonlegt er, oft verið ilt að átta sig á reikningunum, og ómögulegt að ætlast til þess, að rannsakað væri fyrir hvað hver reikningur væri. Þetta lag var og haft á öndverðu þessu þingi, og kendi hins sama, að verð var óhæfilega hátt. T. d. kostaði ein dagskrá í sameinuðu þingi, sem á stóð ein lína: »Prófun fjögurra kjörbréfa«, prentuð í 120 eintökum, 5 kr., og geta menn hér séð corpus delicti, þessa dagskrá. Það nær ekki nokkurri átt, að taka 5 kr. fyrir að prenta þenna bleðil. Enn var og, að prenta þurfti upp skjal, með þeirri einu breytingu, að setja X, setja rómverska tíu í það. Það kostaði kr. 2,90. 6 eintök af auglýsingu, 5–6 línur, sem bannar blaðamönnum að vera í hliðarherbergjum deildanna, kostuðu 2 kr. Þingmannaskrá kostaði kr. 18,60, en sögð er hæfileg borgun 10 kr. samkvæmt taxta prentara. Þannig má halda áfram. Það er ekki gott að segja, hve mikið hefir verið ofgoldið fyrir prentun, en það er víst, að það skiftir þúsundum kr. á ári.

Nú er þessu þó kipt í lag, og get eg þess til þess, að allir njóti sannmælis, forsetar, skrifstofa þingsins og prentsmiðjan.