13.07.1914
Neðri deild: 10. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (862)

39. mál, sala á jörðinni Núpi í Öxarfirði

Pétur Jónsson:

Enda þótt eg búist við að þetta frv. verði sett í nefnd, vil eg þó strax við þessa umr. segja fáein orð til þess að benda á, hve

óheppileg braut það er, ef alþingi fer að gefa heimild til þess að selja þjóðjarðir til einstaklinga með sérstökum lögum. Tilgangur þjóðjarðasölulaganna er sá, að því að eins skuli þjóðjarðir seldar einstaklingum, að þær lendi í höndum ábúanda, og líkindi sé til þess að sjálfsábúðin haldist til frambúðar. Ef nú þingið fer með sérstökum lögum að hlutast til um sölu jarðanna, þá hlýtur þetta aðalprincip að raskast, og það jafnvel þótt sú sala, sem um er að ræða, sé til ábúandana sjálfs, eins og hér á sér stað, ef það er í trássi við tillögur sýslunefndar. Þá skapast það fordæmi, að þingið taki fram fyrir hendurnar á sýslunefndunum, sem þó hefir verið falið að gæta þess, að lögin nái tilgangi sínum og þeim jörðum sé eigi fargað, sem heppilegar eru eða geta orðið til opinberra nota. Enda er það auðsætt, að alþingi er að þessu leyti mikið verr sett heldur en sýslunefndirnar — það vantar kunnugleika í flestum tilfellum.

Eg ætla ekkert að fara út í það nú, hvort ástæður þær, sem hv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) kom fram með fyrir því, að alt mælti með því, að þessi jörð yrði seld. Og eg get hugsað, að dómur sýslunefndar hefði orðið annar, ef henni hefði verið kunnugt um sveitafundina, sem hv. þm. gat um. Það er ekki ólíklegt, að sýslunefndin verði annarar skoðunar næst, ef þessi gögn verða lögð fyrir hana og þá er hægt að selja ábúanda jörðina samkvæmt gildandi þjóðjarðasölulögum. Hve mikil sanngirni sé í því, að selja þessum leiguliða jörðina fer eg ekki út í.

Aðalatriðið er það að skapa ekki fordæmi, þannig, að aðaltilgangi laganna verði raskað.