13.07.1914
Neðri deild: 10. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (867)
39. mál, sala á jörðinni Núpi í Öxarfirði
Jón Jónsson:
Eg skal geta þess fyrir mitt leyti, að eg tel rétt að vera á móti þessu frumvarpi af sömu ástæðu og háttv. þm. S.-Þing. (P. J.). Það er óviðfeldið, að þingið fari að samþykkja lög um sölu á þjóðjörð, sem hlutaðeigandi sýslunefnd er mótfallin. Hins vegar get eg ekkert haft á móti frumvarpinu af þeirri ástæðu, sem hér hefir komið fram í umræðunum, að það sé skaði fyrir landssjóð, að selja þjóðjarðir. Eg finn ekki ástæðu til þess, að fara mörgum orðum um það, sem háttv. 1. þm. Rvk. (Sv. B.) sagði í því sambandi. Um það atriði eru mjög skiftar skoðanir, hvort heppilegt sé að selja þjóðjarðir, eða ekki. En eins og nú er, eru til heimildarlög um sölu þjóðjarða, og eg teldi það fljótfærni, að fara að rjúka til að afnema þau, meðan ekki er fengin full reynsla á þeim. Það hefir verið talað um það hér í deildinni útaf öðrum lögum, að ekki ætti að raska þeim svo fljótt, og er nokkuð til í því. Eg geri líka ráð fyrir því, að reynslan muni sýna það, að hyggilegt sé að leyfa þessa sölu. Eg legg sem sé mesta áherzluna á það, að jörðunum sé sem mestur sómi sýndur og að þær fái sem bezta ábúð í framtíðinni, miklu meir en hitt, að landssjóður hafi meira lánstraust af því, að hann sé eigandi þeirra. Mér finst það einkennileg skoðun, þetta, að það rýri lánstraust landssjóða, þótt hann selji landsmönnum jarðirnar. Eg hélt, að ef vér förum hyggilega að ráði voru í fjárstjórninni hér á þingi, þá verði engin hætta á því, að vér fáum ekki lán eftir þörfum. Og það er líka skrítið, að það ætti að vera svo torvelt, að fá lán ef þörf krefur, ef það sýnir sig, að vér tökum framförum bæði til lands og sjávar, jarðirnar hækka í verði og þar fram eftir götunum. Og á því hefi eg fasta trú, að það muni sýna sig, að sala þjóðjarða verði til þess, að búakapur á þeim verði miklu betri en ella.