06.08.1914
Neðri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

39. mál, sala á jörðinni Núpi í Öxarfirði

Pétur Jónsson:

Eg ætla ekki að halda langa ræðu um þetta mál. Við minni hl. í nefndinni höfum ekki séð neina ástæðu til þess að skrifa sérstakt nefndarálit, og eg ætla aðeins með fáeinum orðum að skýra frá því, hversvegna við erum á móti frv. Verði sala jarðarinnar ákveðin gegn mótmælum sýslunefndar, þá getur það ekki þýtt annað en það, að atkv. sýslunefnda getur ekki verið því til tryggingar, að jarðir, sem eru heppilegar til þarfa landsins eða sveitafélagsins, væri ekki lógað. Þeirra atkvæði er að vettugi virt. Og til hvers er þá þetta ákvæði í lögunum, að álits sýslunefndar, sem er kunnug, skuli leitað, þegar alþingi, sem er ókunnugt staðháttum, þarf ekki að taka neitt tillit til þess.

Nei, álit og atkvæði sýslunefndar á að vera trygging gegn því, að stjórnin selji þær þjóðeignir einstökum mönnum, sem skaði er að farga úr eign hins opinbera. Sama ætti að gilda gagnvart alþingi sjálfu. Það þekkir ekki til á hverjum stað. Og sé breytt út af þessari reglu, álít eg miklu spilt.

Viðvíkjandi þessari jörð, sem hér er um að ræða, þá skal eg geta þess, að nú eru ekki eftir nema tvær þjóðjarðir í hreppnum, sem ekki er búið að farga, Ærlækur og Núpur, og eg tel það illa farið, ef nú verður farið að selja aðra þeirra.

Eg tel óþarft að ræða meira um þetta — en vænti þess, að frv. verði felt.