06.08.1914
Neðri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í B-deild Alþingistíðinda. (880)
39. mál, sala á jörðinni Núpi í Öxarfirði
Eggert Pálsson:
Eg ætla ekki að vera langorður, en vegna þess að frsm. meiri hl , háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) er ekki viðstaddur, skal eg í fáum orðum skýra frá því, hvað fyrir meiri hl. vakti í þessu máli.
Það er tekið fram í nefndaráliti meiri hl., að það, sem á milli ber, er það, hve mikið vald sýslunefnd hefir í þessu efni. Á því veltur alt. Meiri hl. álítur, að það sé ekki ótakmarkað, heldur verði sýslunefnd að gera einhverja skynsamlega grein fyrir því, hversvegna ekki megi selja þjóðjörðina. Það hefir sýslunefnd Norður-Þingeyjarsýslu ekki gert. Að vísu segir hún, að jörðin sé vel fallin til þess að nota hana sem læknissetur. Þetta væri nú fullkomin afsökun, ef læknisseturs þyrfti með. En nú er það upplýst, að læknissetur er þegar ákveðið í þessu héraði, á Kópaskeri. Og ekki er hætt við, að læknir fari að flytja þaðan, því að bæði hefir verið bygt þar yfir hann, og sömuleiðis er verið að leggja síma þangað. Þessi afsökun sýslunefndar er því aðeina til, málamynda.
Ekki kemur heldur til greina, að jörðin verði notuð undir skólahús, þareð hún, eftir því sem upplýst. hefir verið, liggur í öðrum enda hreppsins, og er því illa fallin til þeirrar notkunar.
En það sem mælir einna mest með sölu þessarar jarðar er hagnaður sá, er hreppsbúar gæti haft af sölunni. Þeir hafa nfl. í hyggju að koma sér upp heyforðabúri, og gefst þá kostur á slægjum til þess í engjum ábúanda, verði hann eigandi, en hafa hinsvegar enga von til þess að fá þær slægjur, ef jörðin heldur áfram að vera í landsleigu. Þetta hefir ráðið mestu um það, að eg er með frv. og svo mun einnig vera um suma aðra meðnefndarmenn mína. Ennfremur lít eg þannig á spurninguna um sölu þjóðjarða — hvort hún sé heppileg eða ekki — að eg tel það lítið gagn fyrir landasjóð að halda eftir örfáum jörðum, fyrst ekki er hægt með neinu móti að fá allar jarðir í landinu í þjóðareign. Væri nokkur sýnilegur vegur til þess, þá væri öðru máli að gegna. En að halda fast í þessar örfáu jarðir, sem landssjóður á sér til skaða meir en ábata, sé eg ekki til neins, ef sæmilegt verð er á annað borð fáanlegt fyrir þær.