07.08.1914
Neðri deild: 37. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (886)
39. mál, sala á jörðinni Núpi í Öxarfirði
Framsögum. (Benedikt Sveinsson):
Mér þykir leiðinlegt að vera að elta ólar við nágranna minn út af þessu. Eg hélt, að hann væri svo kunnugur á þessum stöðum, að hann vissi, að það er engar minstu líkur til að farið verði að flytja læknissetrið upp í sveit, þar sem búið er að byggja hús handa lækninum í kauptúni við símastöð í þéttbýlustu sveit héraðsins. Það hefir aldrei verið gert áður, svo eg viti, að rifa niður læknisbústað í kauptúni og byggja það upp aftur í sveit, og verður víst ekki heldur hér. Hitt er miklu tíðara, að læknasetur sé flutt úr sveitum í kaupstaði. Það kemur ekki til nokkurra mála að læknissetrið verði flutt á þessa jörð.