03.08.1914
Neðri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (893)
87. mál, friðun á laxi
Sveinn Björnsson:
Eg hefi ekki getað séð, hvorki á nefndarálitinu né á framsögunni, hvaða þörf er á að veita þessarri einu sýslu, þetta undanþáguákvæði frá lagfriðunarlögunum. Mér skilst, að það muni koma svo fáum sýslubúum að gagni, en aftur á móti svo mörgum að ógagni, að ekki sé rétt af þinginu að samþykkja þessa breytingu. Það er augljóst, að erfitt verður að framfylgja 36 klukkustunda friðuninni ef þessi undanþága verður veitt. Það ætti þá um leið að gera aðrar breytingar á lagafriðuninni í líka átt og háttv. þm. Mýr. (J. E.) talaði um, með því að auka við friðunartímann, t. d. þannig, að hann væri látinn byrja seinna, en nú á sér stað. Mér skilst, að ef laxinn verður ófriðaður allan veiðitímann, þá verði hægt að nota veiðina svo, að lítið af lagi gangi upp eftir ánum. Og það getur ekki verið rétt af þinginu að stuðla að því, að þeim einum sem búa við árósana, sé heimiluð öll hlunnindin af laxagöngunni í árnar, eða því sem næst.
Eg verð því, að svo komnu, að styðja till. háttv. þm. Mýr. (J. E.) að frumv. verði felt.