08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (912)
115. mál, kaup á Þorlákshöfn
Sigurður Sigurðsson:
Eg vil biðja háttv. þm. að athuga, að það er frv. á þskj. 392, sem hér er um að ræða, og í því er ekki farið fram á annað en að semja um kaup:í jörðinni. Þó að landsverkfr. hafi ekki lokið við áætlanir eða teikningar af þessu verki, þá mun hann þó verða búinn að því svo snemma., að stjórnin geti framfylgt lögunum þegar þau hafa verið staðfest. Annars er erfitt að fást við þá menn, í þessu máli, sem bæði eru því illviljaðir og ókunnugir. (Nokkrir þingmenn: Hverjir?). T. d. 1. þm. Hún. (G. H.). Hann byrjaði eins og hann er vanur: var með því fyrst, en eftir nokkra sólarhringa er það orðið óalandi og óferjandi, og hann vill fyrir hvern mun koma því fyrir kattarnef. Þetta er vanaleg hringferð hans í flestum málum.
Þetta mál virðist eiga hér erfitt uppdráttar, eins og löggilding Þorlákahafnar hér á árunum. Því máli var fyrst hreyft á fyrsta löggjafarþingi voru 1845, af þáverandi þingmanni sýslunnar, Johnsen, assessor í landsyfirréttinum. Það var síðan á döfinni í mörg herrans ár, og náði ekki fram að ganga fyrr en árið 1879.
Nú er sagt, að ekki sé hér þörf á mótorbátahöfn. En þá vil eg spyrja: Hvar er þörf á höfn, ef ekki þar ? Hvar er öryggishöfn nauðsynleg, ef ekki fyrir Suðurlandi? Þar er ekki einn einasti öruggur staður fyrir skip eða báta, ef út af ber með veður eða sjólag. Háttv. 1. þm. Hún. (G. H.) sagði, að sjór væri ekki stundaður í Þorlákshöfn nema stutt an tíma. Frá ómunatíð hefir verið róið þar um vetrarvertíðina, en hún byrjar á þorra og nær framundir miðjan maí. En komist höfnin á, þá eru líkur til að sjór verði stundaður þar mun lengur, alt vorið og jafnvel fram á slátt, og líka að haustinu, ef fiskur er fyrir.
Eina ástæðan fyrir því, hvað sjór er lítið stundaður í Þorlákshöfn er sú, að þar er engin höfn og lending ekki góð, einkum í austan- og sunnanáttum. Og þó er þarna þrautalendingin austan fjalls. Nú er að rísa upp nýr útvegur á Eyrarbakka og Stokkseyri — mótorbátaútvegurinn. En hann en öldungis í dauðanum, ef ekkert er gjört til þess að bæta úr hafnleysinu þar eystra. Örugg höfn í Þorlákshöfn er það eina, sem bjargar. Eins og nú er, er útvegurinn á hverfanda hveli, og er mesta mildi, að enn hefir ekki hlotist stórslys og tjón á þeim stöðvum. Því segi eg það, að jafnvel hvergi er meiri þörf á höfn, en einmitt í Þorlákshöfn.
Háttv. 1. þm. Hún. (G. H.) hélt því fram, að þarna mundi ekki geta risið upp stórbær. En það er heldur ekki tilætlun nefndarinnar, síður en svo. Hún vill aðeins tryggja mótorbátaútvegnum og sjávarútvegnum yfir höfuð tilverurétt.
Svo á þetta að vera á eyðimörku! Svona er fákunnátta þeirra, sem þykjast hafa vit á öllu. Eg veit ekki betur en að í Þorlákshöfn hafi verið búið stórbúi í marga mannsaldra. Jón sál. Árnason hafði þar t. d. 3–400 fjár og 8–10 nautgripi og þeim bústofni er þó tæplega hægt að framfleyta á eyðimörku! Það er að vísu satt, að útslægjur eru þar ekki miklar, en beit er þar góð, bæði fjörubeit og hagar, og tún gott.
Annars má geta þess, og það er aðalatriðið í þessu máli, að hvergi fyrir öllu Suðurlandi er álitlegt hafnarstæði, nema aðeins í Þorlákshöfn. Þar mun tiltækilegt að gera höfn, sem ekki kostar offjár. En þetta þekkja þeir ekki, andstæðingar vorir í þessu máli, og því er svo erfitt að eiga orðastað við þá.
Það er satt að segja ergilegt, þegar menn af þekkingarskorti eða öðru lakara gera tilraunir til að villa sjónir og ónýta góð mál, með því að bera á borð blábera vitleysu, sem á sér engan stað.