08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í B-deild Alþingistíðinda. (914)

115. mál, kaup á Þorlákshöfn

Ráðherra (S. E.):

Samkvæmt 1. gr. frv. er stjórninni heimilt að festa kaup á jörðinni, en þar er ekkert talað um, fyrir hvað mikið megi kaupa hana. Eg verð að álíta, að það sé mjög óheppilegt, að ekki skuli vera tiltekið neitt hámark. Það hefir verið nefnd hálf miljón, er sýnir, að hér er ekki um smáupphæðir að ræða. Eg þykist viss um, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) þyki þetta alls ekki sem ráðlegast, þegar hann athugar málið, þó eg viti, að hann treysti stjórninni mjög vel.

Samkv. 2. gr. á líka að byggja höfnina án þess að nokkuð sé vitað um kostnaðinn. Það liggja engin skjöl eða skilríki fyrir frá landsverkfræðingnum þar að lútandi. Sumir hafa það eftir honum, að höfnin muni koma til með að kosta 50–60 þús. kr., og aðrir segja enn meira. Þingið getur ekki staðið sig við það, sóma síns vegna, að leggja fé út í aðra eins óvissu og þessa.

Hitt er sjálfsagt, að skora á stjórnina að undirbúa málið til síðari aðgerða og úrslita þingsins.

Eg vona að frv. verði ekki samþ. í þessari mynd.