08.08.1914
Neðri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (924)
115. mál, kaup á Þorlákshöfn
Guðmundur Hannesson:
Út af deilum þeim, sem orðið hafa um þennan margnefnda 75 þús. kr. garð, þá vil eg geta þess, að hann er á þurru landi um fjöru, en í sjó um flóð.
Jörðin er að eins 43,5 hndr. að nýju mati, og getur ekki kallast mjög mikils virði. Fasteignabrask síðari ára hefir hleypt henni upp.
Af því, sem hér hefir verið sagt til meðmæla þessu frumv. þykir mér bezt það, sem háttv. 1. þingm. G.-K. (B. Kr.) hefir talað.