10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (927)
115. mál, kaup á Þorlákshöfn
Framsögum. (Einar Arnórsson):
Eg get verið mjög fáorður. Það hafa komið fram tvær breyt.till. á þskj. 411 og á þskj. 457. Brtill. á þskj. 411 fer fram á það, að hafnarbyggingin hefjist í júnímánuði 1915. Brtill. á þskj. 457 fer fram á það, að í staðinn fyrir upphafið á 1. gr. frv.: »Landstjórnin semji sem fyrst og í síðasta lagi fyrir næsta nýár« o. s. frv. komi: Landstjórninni heimilast að semja sem fyrst o. s. frv. Þessar brtill. eru fram komnar samkvæmt bendingu nokkurra þingmanna við 1. umr. málsins. Eg vona, að mönnum virðist frumvarpið aðgengilegra með þessum breytingum, og vænti eg, að það fái nú að ganga leiðar sinnar.