06.08.1914
Neðri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (946)
96. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Framsögum. meiri hl. (Matthías Ólafsson):
Oft hefir háttv. þm. Dal. (B. J.) tekist betur en nú, enda eðlilegt, þar sem hann er ekki kunnugur málinu.
Málið er ekki kappsmál, en nefndin hefir tekið það fram, að hún telur óvænlegt, eins og sakir standa, að herða á sektaákvæðunum, sérstaklega vegna Englendinga, sem hér eiga svo marga botnvörpunga, eins og kunnugt er. Enn fremur telur nefndin, að lítil líkindi sé til, að lögin komi að nokkuru gagni fyrr en á næsta þingi.
Um hitt atriðið, undanþágu íslenzkra botnvörpunga, er það að segja, að það er engum til meins, en mörgum til gagns, því að það er afarmikil vinna og umstang, eins og háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) tók fram í nefndinni, sem er því samfara að hafa alla hlera innan borðs. Íslenzkir botnvörpungar eiga öðrum skipum framar erindi um landhelgina og þurfa um hana að fara án þess að hafa sviksamlegan tilgang.
Þegar nú þessa er gætt, að frumv. getur orðið til þess að vekja óhug og óvild annara þjóða til vor, í annan stað, að frumvarpið getur ekki að gagni komið fyrr en á næsta þingi og í þriðja lagi, að frumvarpið er til ógagns fyrir íslenzka botnvörpunga, þá ræður nefndin deildinni til að fella frv.
Í áliti minni hlutans er vikið að því, að mikil vinna hafi verið lögð í frumv. og að henni sé spilt með því að fella frumv. Eg vil benda á það, að vinnan er alls ekki ónýt; athuganir þær, sem nú hafa verið gerðar, eru góðar og gildar á næsta þingi, ef málið verður þá tekið fyrir, sem líklegt er, ef sorti sá, sem nú vofir yfir, er úr lofti liðinn, og mundi eg þá greiða atkvæði með hækkun sektanna, ef eg ætti þá sæti á alþingi.