03.08.1914
Neðri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 989 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
8. mál, grasbýli
Pétur Jónsson:
Eg bjóst við því, að þingsályktunartill. á þskj. 270 yrði tekin til umræðu á undan þessu frumv. Hafði nefndin þá ætlað sér að taka frv. aftur, ef till. yrði samþ. Eg vil því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál út af dagskrá að sinni, og taki það ekki fyrr til umræðu, en þingsályktunartillagan hefir verið rædd.
Frv. tekið út af dagskrá.