10.08.1914
Neðri deild: 39. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (966)
42. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands
Framsögum. (Bjarni Jónsson):
Eg get gert stuttan ómagahálsinn á þessu frv., og næstu fimm frv. á dagskránni, því að eg hefi fengið heimild til þess frá öllum flutningsmönnunum, að taka þau aftur með þeim ummælum, að treyst sé á, að það loforð verði haldið, sem gefið er í bréfi símastjórans, að allir þessir símar verði lagðir sumarið 1916, og með skírskotun til annara þess, sem tekið er fram í nefndarálitinu.
Frumvarpið tekið aftur.