17.07.1914
Neðri deild: 14. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (989)

65. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands

Flutningsm. (Þorleifur Jónsson):

Eg hafði ekki ætlað mér að fara að grauta í ritsímalögunum frá 1912 á þessu þingi, en þar sem eg sé svo marga aðra fara fram á breyting ar á þeim, þá þóttist eg ekki heldur mega sitja hjá aðgjörðalaus, og hefi því leyft mér að koma fram með þetta frv. á þskj. 98.

Það er nú þegar ákveðið í símalögunum, að símalína skuli lögð til Hornafjarðar. Hún er ekki komin ennþá að vísu, en verður lögð að sumri, ásamt öðrum 2. fl. línum. En þá er enn eftir bil, símalaust frá Hornafirði og vestur úr, og hefi eg því farið framá, að þar verði ákveðið að leggja 3. fl. síma, er stundir líða. Þetta verður engin byrði á landssj. að sinni, heldur tekur þá fyrst til þess, er tekjur landsins leyfa það og tækifæri gefst. Því er líkt varið með þenna síma, er eg fer fram á, að lagður verði úr Hornafirði vestur í Öræfi, eins og ýmsa 3. fl. síma, sem standa í Símalögunum, t. d. um Barðastrandaraýslu, upp Rangárvallasýslu, og síma frá Vík austur í Vestur-Skaftafellssýslu. Það eru alt sveitasímar og ætti að vera jafnréttháir. Eg hefi líka heyrt, að það vaki fyrir stj., eða landssímastjóra að minsta kosti, að koma á samfeldri símalínu milli Rvíkur og Seyðisfjarðar sunnan um land, til þess að tryggja betur samband Rvíkur við útlönd en nú á sér stað. Símalínan norðanlands er undirorpin miklum bilunum, og svo hefir sú lína svo mikið að gjöra, að örðugt er um sambönd við Austurland þá leiðina, og er því ekki óeðlilegt að sú hugmynd komi fram, að lína verði lögð alla leið Sunnanlands.

Eg skal engu um það spá, hvert fylgi þetta frv. muni hljóta hér í deildinni. Það getur verið, að sumum ói við söndunum eystra, og þá einkum Skeiðarársandi. En ef hugmyndin, sem eg gat um áðan, er ofarlega á baugi, þá er að gæta þess, að þessi spotti, sem hér er farið fram á, er partur úr allsherjarlínunni sunnan lands.

Skal eg svo ekki lengja umr. með neinni mælgi um þetta, heldur að eins óska þess, að frv. verði vísað til símanefndar, og vona að hún fari um það móðurhöndum.