19.08.1915
Efri deild: 37. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)
102. mál, Flóaáveitan
Eiríkur Briem:
Það er formlegt atriði við ræðu hv. þm. Skagt. (J. B.), sem jeg vil minnast á. Þetta fje, sem hjer er um að ræða, verður að veitast í fjárlögunum; þingsályktunartillagan ein er ekki nægileg. Þessi fjárveiting er ekki löglega. formleg, nema því að eins, að hún sje veitt í fjárlögunum. Þegar fjárlögin koma upp í þessa hv. deild, er nauðsynlegt, að setja þessa fjárveitingu inn í þau, nema. þá að því sje treyst, að hún verði veitt í fjáraukalögunum á þingi 1917.