08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

121. mál, þegnskylduvinna

Jósef Björnsson:

Þessi tillaga, sem hjer liggur fyrir, um að skjóta því til almennrar atkvæðagreiðslu í landinu, hvort lögbjóða skuli skylduvinnu fyrir alla heilbrigða karlmenn einhvern tíma á aldrinum 17–25 ára, um þriggja mánaða tíma, mætti virðast smámál eitt, en svo er þó ekki. Þetta er stórmál, sem snertir ekki minna framtíð en nútíð landsins.

Eftir þingsályktunartillögunni að dæma er svo til ætlast að alþingiskjósendur einir skuli greiða atkvæði um þetta mál, en ekki þeir, sem sjerstaklega eiga við lögin að búa í næstu framtíð, æskumenn þjóðarinnar. En þó það mætti í fljótu bragði virðast æskilegt og eðlilgeft, að ungmenni þjóðarinnar fengju eitthvað að segja um þetta, þá verður því ekki neitað, að vandkvæði mundu reynast á framkvæmd á hlutdeild þeirri í atkvæðagreiðslunni á hlutdeild þeirri í atkvæðagreiðslunni og ekki er svo mikið á mót5i því að hafa, að eðlilegra sje, að hinir eldri, gætnari og vitrari menn ráði þessu.

Mig langar til að reyna að draga fram í stuttu máli aðaldrætti þessa máls.

Því verður ekki neitað að margir hafa gjört sjer mjög glæsilegar vonir um árangurinn af því, ef slík skylduvinna, sem hjer ræðir um, væri lögboðin. Vonir þessara manna hafa verið svo glæsilegar, að nærri liggur að nefna mætti þær draumkendar. Mjer dettur ekki í hug að fullyrða, að þessar vonir reynist tálvonir; um það er hvorki jeg nje aðrir færir að dæma enn þá. En um hitt álít jeg mig fullfæran að dæma, að enn hafa ekki verið lögð nein þau gögn fram í málinu, sem gjörir það mögulegt, að segja með nokkurri vissu hver árangur af þessu verði.

Annar flokkur manna er hjer einnig í landinu, sem gjörir sjer engar vonir um árangur, þótt þetta kæmist í framkvæmd. Hjer standa menn því hvorir gagnvart öðrum, sumir með glæsilegustu vonir í huga, og aðrir vonlausir.

Meðmælendurnir gjöra ráð fyrir að hagnaðurinn, sem af þessu muni hljótast, sje aðallega tvenskonar. Í fyrsta lagi telja þeir þetta vera menningarmál, uppeldismál. Með þessu eigi að skapa nýja og betri kynslóð, hraustari, hlýðnari og vinnufærari kynslóð. Jeg skal ekkert um það segja, hvort ske kunni, að þessar vonir rætist, en þó finst mjer ekki ósennilegt, að minni árangur verði af en þeir ætla, sem bjartastar vonirnar hafa. Í öðru lagi telja meðmælendur þegskylduvinnunnar, að af henni hljóti að leiða fjárhagslegan hagnað fyrir landið. Á þennan hátt fáist miklar og nytsamar framkvæmdir í vegalagningum o. fl. fyrir lítið verð.

Að því er þetta málsatriði snertir, þjóðarhagnaðinn, þá skal jeg engu um það spá, hvort svo verður eða ekki, en ekki hefi jeg sjeð þau gögn borin fram, sem sanna, að svo hljóti að verða, og það þarf áreiðanlega að leggja fram meiri gögn um þetta en gjört hefir verið, enn sem komið er, til þess að fullnægjandi sje og ábyggilegt fyrir kjósendur í landinu.

En til þess, að kjósendur landsins geti með fullri sannfæringu greitt atkvæði með eða móti málinu, þá þarf að leggja öll málsgögn fram, svo það sje bert, hvort. ráðlegt sje, að lögskipa þegnskylduvinnu. eða ekki. Fyrst þá, þegar það er gjört, geta kjósendur með góðri samvissu greitt. atkvæði og sagt „já“ eða „nei“. Ef þessu er ekki fullnægt er úrskurðurinn minna en einskis virði.

Hugsum oss að þetta sje mesta framtíðarmál, að það sje uppeldismál, að það hafi mikinn hagnað í för með sjer fyrir þjóðina, og hugsum oss svo, að atkvæðagreiðslan falli á móti því. Hver er þá afleiðingin af undirbúningsleysinu og of snemma fram borinni atkvæðagreiðslu? Hún er sú, að tafið er fyrir framkvæmdum á góðu og gagnlegu máli.

En hugsum oss nú að þjóðin segi já. En af því að málið hefir verið lítt hugsað og undirbúið áður það yrði að lögum, þá er ekki ólíklegt, að framkvæmdirnar yrðu gallaðar og að ýmsu leyti óheppilegar, svo þjóðin áliti, að hún hefði gjört rangt, og vildi fá lögin afnumin, þótt reynslan hefði orðið allt önnur með góðum undirbúningi.

Jeg tel því víst, að hvernig sem á málið er litið, þá hljóti slík atkvæðagreiðsla sem þessi, sem hjer er farið fram á, að vera mjög athugaverð, því annaðhvort verði hún til þess, að tefja málið um ófyrirsjáanlegan tíma, ef svar þjóðarinnar verður neitandi, eða talsverð hætta getur stafað af því fyrir góða og happasæla framkvæmd, að of fljótt og undirbúningslítið verði hrapað að málinu, En á þessu er hætta, ef þjóðin svarar játandi, nema því að eins, að málið sje vel undirbúið og margfalt betur en. nú er. Án þess því að ganga inn á það, hvort þjóðin eigi að segja já eða nei, og án þess að ganga inn á það, hvort málið er gott eða óheppilegt, þá leyfi jeg mjer að bera fram svo hljóðandi dagskrá, sem jeg með leyfi hæstv. forseta vil lesa upp

Með því að deildin lítur svo á að undirbúningur sá, er mál þetta hefir fengið, sje ónógur, til þess að ráðlegt sje, að láta almenna atkvgr. kosningarbærra manna í landinu fara fram um það, samhliða næstu kosningum, þá álítur hún tillögu þessa of snemma fram komna, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.

Þetta er skoðun mín, og jeg tel það heppilegast fyrir málið sjálft, að það sje langtum betur undirbúið og hugsað frá öllum hliðum, áður en það er borið undir atkvæði kjósenda. Og jeg vænti þess, að hv. deild samþykki dagskrána.