08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1023)
121. mál, þegnskylduvinna
Kristinn Daníelsson:
Jeg get tekið undir með hv. 5. kgk. (G. B.), að jeg er ekki óhræddur um, að þjóðin sje ekki nógu vel undir það búin, að greiða at- kvæði um málið, og efast því um, að hún mundi gefa því jákvæði sitt. Það, sem helst er því þá til fyrirstöðu, að málið sje þegar borið undir þjóðaratkvæði, er að það sje enn ekki nógu rætt orðið og skýrt fyrir þjóðinni. Hvað sem þessu líður, þá hefi jeg þó þá sögu að segja, að skorað var á mig og samþingismann minn, að hreyfa málinu á þingi. Verð jeg með því að afsaka það, að jeg tef tímann með því að fara nokkrum orðum um það.
Jeg tel það mála sjálfsagðast, að þjóðin sjálf fái að ráða máli þessu til lykta, svo að hún geti ekki borið það á þingið, að það leggi á þungar kvaðir öllum að fornspurðum.
Þessari kvöð hefir verið líkt við herskylduna hjá öðrum þjóðum, og verið talið rjett og sanngjarnt, að vjer legðum eitthvað líkt á oss, þjóðinni til upplyftingar og frama.
Hernarþjóðirnar reyna að efla frelsi og menning og sjálfstæði sitt með bardögum, en hjer er ætlast til; að vjer gjörum eitthvað líkt með friðsamlegum störfum fyrir ættjörðina.
Þegar rætt er um þetta mál, þá er jafnan lögð áhersla á þetta tvent: að hjer sje um þjóðhagnaðarmál, og um uppeldismál að ræða. Mjer heyrðist hv. 2. kgk. (Stgr. J.) leggja mesta áherslu á uppeldishlið þess, hitt skifti minna, hver peningahagnaður yrði að því. Jeg fyrir mitt leyti verð að játa, að jeg legg aðaláhersluna á .það, að jeg vænti þess, að beinan hagnað og þarflegar framkvæmdir geti leitt af þegnskylduvinnunni, til framfara og menningar fyrir þjóðina. Eitthvað gott mundi og að líkindum leiða af henni í hina áttina, og sennilega því meira, því lengur sem hún hjeldist við.
Jeg hefi orðið þess var, að menn, sem ráðist hafa alveg óvanir í reglubundna vegavinnu undir stjórn góðs verkstjóra, hafa lært af því, svo að þeir hafa við það orðið hæfir til að segja siðar fyrir slíkum verkum sjálfir. Eitthvað líkt þessu mundi geta leitt af þegnskylduvinnunni, og væri þá vel farið. Mjer hefir ávalt þótt hugsjón þessi fögur. En um hitt vil jeg ekki fullyrða, hvort vor fátæka þjóð er fær um að leggja á sig þá byrði, sem hjer er ætlast til. En hvað sem því líður, þá vil jeg ekki að hún sje fyrr lögð á hana en hún vill það sjálf. En ekki get jeg talið það móðgun við hana, að hún sje spurð um álit sitt á málinu: Jeg tek það aftur fram, að jeg býst miklu fremur við nei en jái frá henni. Hv. 2 þm. Skagf. (J. B.) spurði, á hverju þjóðin eigi að byggja svar sitt. Hún verður aðallega að byggja það á þessu tvennu, hvort hún telji sjer fært að taka á sig þegnskylduvinnuna og hvort hún vilji leggja svo mikið í sölurnar, sem hún kostar.
Það er gott að því leyti, að fá þessu svarað nú þegar, að ef svarið verður nei, þá þarf ekki um langa hríð að tefja tíma þingsins við það mál. Að endingu tek jeg það fram, að jeg mun greiða atkvæði með tillögunni, meðfram fyrir áskorun kjósenda minna.