02.09.1915
Efri deild: 49. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (1037)

111. mál, yfirskoðunarmenn landsreikninganna

Hákon Kristófersson :

Þar sem jeg býst við, að jeg greiði atkv. á móti brtt. á þgskj. 703, þá vil jeg gjöra grein fyrir atkv. mínu. Jeg get ekki verið samdóma háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) um það, að hægt sje að bera saman dagpeninga embættismanna, er þeir ferðast um, til þess að líta eftir undirmönnum sínum, og þingfarakaup alþingismanna. Því þess ber að gæta, að embættismenn, er fara þessar eftirlitsferðir, eru menn, sem hafa hátt kaup af samlagssjóði þjóðfjelagsins, og það kaup hafa þeir jafnt, hvort sem þeir eru heima eða að heiman. Jeg skal engan dóm á það leggja, hvort kaup alþingismanna sje sanngjarnt, en hinu verð jeg að halda fram, að hægt sje að ferðast sómasamlega fyrir 5 kr. á dag. Þessar 8 kr., sem alþingismönnum eru goldnar, eru kaup en ekki fæðispeningar. En þessar 5 kr., sem embættismönnum eru ætlaðar, eru einungis fyrir fæði. Laun þeirra eiga ekkert að minka fyrir það. Þeir fá allan kostnað af ferð sinni endurgreiddan, hvort sem þeir fara sjóleiðis eða á landi, og þurfa hesta og fylgdarmenn; þess vegna er þessi samanburður alls ekki frambærilegur. Jeg sje ekki, að neinn þurfi að skaðast af því, þó hann fái ekki nema 5 kr. í fæðispeninga á dag. Ef einhver af örlæti sínu vill greiða meira fyrir sig en bein þörf er a, þá verður hann að gjöra það úr eigin vasa, en ekki úr samlagssjóði þjóðfjelagsins. Ef þessir háu herrar eru svo ríflegir á fje, þá er vitanlega við búið, að 5 kr. nægi þeim ekki í fæðispeninga og vasapeninga, en þá er heldur ekki nema sanngjarnt, að þeir greiði mismuninn sjálfir. Af þeim ástæðum hlýt jeg að greiða atkv. á móti brtt. háttv. 5. kgk. þm. (G. B.). Viðkomandi kaupi alþingismanna vil jeg taka það fram, að jeg á engan þátt í hve hátt það er, en sem mína reynslu verð jeg að segja það, að fyrir fæsta mun það vera fjárhagslegur gróði að sitja á þingi. Það er annara mjög einkennilegt, hve háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) tekur það illa upp, að settar sjeu skorður við því, að reikningar þessara embættismanna sjeu ekki framvegis eins mikið fram úr öllu hófi, eins og þeir hafa stundum áður verið. Að með þessu sje verið að skíta út embættismenn, eins og háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) komst að orði. neita jeg algjörlega. Hótanir háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) um nýtt frv., sem og nýjan bækling til þjóðarinnar, það læt jeg mig engu skifta. Tel líka víst, að þegar háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) gætir betur að, þá sjái hann, að hjer er ekki verið að gjöra neitt ranglæti.