14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 956 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)

117. mál, lífsábyrgðarfélag

Framsm. (Eiríkur Briem):

Nefndin, sem skipuð var í mál þetta, hefir gefið álit sitt um það á þgskj. 955.

munandi skoðanir á málinu, en öll varð hún þó sammála um aðalatriði þess, eins og hin rökstudda dagskrá ber með sjer.

Hún var sammála um það, að ekki væri víst, að innlent lífsábyrgðarfjelag gæti borið sig, nema með hærri iðgjöldum en heimtuð eru í erlendum lífsábyrgðarfjelögum. Í nefndarálitinu er nefnt ýmislegt, sem þessu sje valdandi, svo sem tiltölulega meiri stjórnarkostnaður í fámennu fjelagi en fjölmennu, enn fremur að þörf sje á, að áhættan skiftist á marga, en hætt sje við, að í voru fámenna landi sje tvísýnt um; að fjöldi trygginganna geti orðið nægur, til þess að áhættan verði ekki of mikil, og fleira mætti nefna.

Niðurstaðan varð því sú hjá nefndinni, að skora á stjórnina, að afla upplýsinga um málið, og leggja þær fyrir næsta reglulegt Alþingi.

Eins og tillagan var, þegar hún kom frá hv. Nd., átti að heimila stjórninni 5000 kr. til að undirbúa og leggja fyrir þingið lög um landslífábyrgðarfjelag, og ef fært þætti, slysaábyrgðarfjelag í sambandi við það. Nefndin taldi sig ekki geta sagt um það, hvort þessar 5000 kr. mundu nægja til allra nauðsynlegra undirbúningsrannsókna og til að semja lagafrumvarp um málið, er lagt yrði fyrir þingið. Hins vegar er hjer um töluverða fjárveitingu að ræða, eins og málið horfir við frá hennar sjónarmiði, og vill hún því ráða hv: deild til að samþ. svo hljóðandi rökstudda dagskrá:

Í því trausti að stjórnin afli sjer upplýsinga um málið og leggi þær fyrir næsta reglulegt Alþingi, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.

Nefndin gjörir ráð fyrir, að það muni ekki þurfa að kosta mikið fje, að afla þessara upplýsinga, en þær mundu þó geta gefið þinginu bendingu um, hvort leggjandi mundi lengra út í málið eða ekki.

En fari svo, að þessi dagskrá nái ekki fram að ganga, þá ber nefndin fram til vara brtt. við þingsályktunartillöguna á þgskj. 955, þannig, að í staðin fyrir orðin „lög um landslífsábyrgðarfjelag, og ef fært þykir“, komi: „og ef fært þykir lög um landslífsábyrgðarfjelag og“, með öðrum orðum flytja orðin „ef fært þykir“, fram fyrir landslífsábyrgðarfjelag. Verður landsstjórninni þá eftir sem áður heimilt að verja alt að 5000 kr. til rannsóknar þeirrar, sem farið er fram á að gjörð sje. Aðaltillaga nefndarinnar er hin rökstudda dagskrá, sem ber fram þá ósk og von, að stjórnin útvegi upplýsingar um málið, án þess þær þurfi þó að kosta mikið, og leggi þær fyrir næsta þing, er þá ákveður hvort það vill fara lengra út í málið eða ekki.

Brtt. nefndarinnar er sú, að hún vill að stjórnin sje látin sjálfráð um, hvort hún vill leggja málið fyrir þingið í frumvarpsformi eða á annan veg.