14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)
117. mál, lífsábyrgðarfélag
Sigurður Stefánsson:
Hjer ekki einungis nauðsyn á að koma upp lífsábyrgðarfjelagi og slysaábyrgðarfjelagi. Engu minni þörf er á, að komið væri á stofn innlendu sjóvátryggingarfjelagi. Ýms atvik hafa legið að því, að jeg hefi ekki komið fram með sjerstaka tillögu um þetta. En nú vil jeg nota tækifærið, og beina því til stjórnarinnar, hvort hún mundi ekki treysta sjer til að taka þetta til athugunar í sambandi við hitt tvent, þó þannig, að hún sje eigi skuldbundin til að hafa lokið undirbúningi málsins fyrir næsta þing. Sjávarútvegsnefndin ræddi nokkuð um mál þetta við útgjörðarmenn hjer í bæ, og tóku þeir fremur dauflega í málið, enda mun ófriðurinn hafa þar nokkru um valdið. Hins vegar má gjöra ráð fyrir því, að stjórnin mundi njóta liðsinnis útgjörðarmanna, ef hún tekur málið til meðferðar og rannsóknar.
Mjer hefir nú dottið í hug, að koma með nýja rökstudda dagskrá, er bæti sjóvátryggingu við hin rannsóknarefni stjórnarinnar; vil jeg með leyfi hæstv. forseta lesa hana upp:
Í trausti til þess, að landastjórnin rannsaki möguleika á því, að koma á innlendum ábyrgðarfjelögum, þar á meðal lífsábyrgðarfjelagi, slysaábyrgðarfjelagi og sjóvátryggingarfjelagi, og undirbúi mál þetta undir næsta reglulegt Alþingi, að því er hún telur fært, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.
Jeg vildi gjarna heyra álit hv. framsm. (E. B.), hvort hann mundi ekki telja fært að samþykkja þessa dagskrá í stað dagskrár nefndarinnar. Að öðru leyti gjöri jeg þetta ekki að kappsmáli.