14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (1075)

117. mál, lífsábyrgðarfélag

Kristinn Daníelsson:

Út af því, sem háttv. framsm. (E. B.) sagði, skal jeg upplýsa það, að sjávarútvegsnefndirnar unnu saman, og þegar þetta mál var þar til umræðu, voru formenn útgjörðarfjelaganna hjer í bænum boðaðir á þann fund. Þeir íhuguðu málið, en gátu ekki að svo stöddu lagt það til, að þingið tæki það að sjer. Við það strandaði málið hjá sjávarútvegsnefndinni. Út af orðum háttv. framsögumanns (E.B.) vil jeg taka það fram, að jeg álít sjálfsagt rjett, að ekki yrði stjórninni meinað að verja lítilsháttar fje, sem þyrfti, til þess að athuga málið, en yrði þó ekki nein veruleg upphæð. Það var skoðun nefndarinnar, að ekki væri að svo stöddu verjandi þeirri upphæð, sem tiltekin er í tillögu þessari, til þess að rannsaka mál- ið, og það var einhuga álit, að þessi ábyrgð ætti að vera síðust í röðinni, en meira riði á bruna- og sjótryggingu. Við njótum sama iðgjalds og útlendingar í lífsábyrgðarfjelögunum, en öðru máli er að gegna um brunatryggingar.