14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (1078)

117. mál, lífsábyrgðarfélag

Guðmundur Björnson :

Jeg ætla að greiða atkvæði með dagskrá háttv. þm. Ísaf., en er honum þó öldungis ósammála um það, að sjótrygging eigi að koma fyrst og helst til greina. Það er slysatrygging sjómanna, sem verður að koma fyrst og fremst til álita. Það var hörmulegt, hvernig það mál fór á þingi í sumar, því að jeg vil segja, að það er eitt af allra stærstu nauðsynjamálum landsins, að eignast öflugan slysatryggingarsjóð.

Jeg verð að taka í sama streng og hæstv. ráðherra, að það er ekki hugsanlegt, að hægt sje að fá nógu góðan undirbúning, nema til þess sje kostað töluverðu fje. Þetta er vandamál og því myndi undirbúningurinn kosta langan tíma og mikið fje.