14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)
117. mál, lífsábyrgðarfélag
Ráðherra:
Jeg vil að eins benda á það, að verði dagskrá háttv. þm. Ísaf. (S. St.) samþykt, þá verður stjórnarráðið að rannsaka þrennskonar ábyrgðarfjelög, samkvæmt tillögunni frá háttv. Nd. Þá getur ómögulega minna fje farið til þess en Nd. gjörði ráð fyrir, að færi til þess eins að rannsaka lífsábyrgð.