14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (1082)

117. mál, lífsábyrgðarfélag

Framsögum. (Eiríkur Briem) :

Það er enginn vafi á því, að undirbúningur undir fullkomin lög úu lífsábyrgðarstofn- un yrði miklu dýrari en hinar 2 tryggingarnar, því að skýrslur og reikningar, er snerta lífsábyrgð, taka mikinn tíma og fje. Jeg er samdóma háttv. 5. kgk. (G. B.), að slysatryggingin er mjög nauðsynleg. Það verður að safna skýrslum, en er óvíst, að það verði hægt fyrir næsta reglulegt Alþingi. Eins og hæstv. ráðherra tók fram, er eigi hægt að komast hjá töluverðum kostnaði við að afla þeirra auglýsinga, er hin rökstudda dagskrá fer fram á, en ef upplýsingarnar, sem safnað verður, benda á, að ekki sje tiltækilegt að leggja út í stofnun lífsábyrgðarfjelags, þá sparast stórfje, með því að sleppa nánari undirbúningi málsins.