08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1092)
125. mál, Minningarsjóður Herdísar og Ingileifar Ben.
Fyrirspyrjandi (Magnús Pjetursson):
Það er um alla Vestfirði mikil löngun og áhugi á því, að fá kvennaskóla á Vesturlandi, sjerstaklega á tveimur síðustu árum. Aðallega er það sprottið af því, að mönnum er kunnugt um, að frú Herdís sál. Benediktsen hafði gefið allálitlega fjárupphæð til þess.
Að vísu hafa menn sjeð reikninga sjóðsins, sem prentaðir eru í Stjórnartíðindunum, en allir eru jafnnær fyrir því. Það, sem þá helst fýsir að vita, er hve nær sjóðurinn geti tekið til starfa. Menn á Vesturlandi fýsir mjög að vita, hve nær þessi fyrirhugaði skóli geti orðið stofnaður; en um það er mönnum ókunnugt, því að gjafabrjefið hefir aldrei verið birt. Út af þessu var á sýslunefndarfundi í Strandasýslu í vetur rætt um þetta mál og leitað frjetta um það hjeðan úr Reykjavík. Á svarinu, sem kom símleiðis, var ekkert að græða, og var þá skorað á þingmann kjördæmisins, að grenslast eftir um sjóð þenna, og af þeirri ástæðu er þessi fyrirspurnin framkomin, sem hæstv. ráðherra ætlar nú að svara.
Fyrsta spurningin er um það, hvar sjóðurinn sje. Það getur verið að mönnum finnist þetta nokkuð kynleg og barnaleg spurning, þar sem reikningar hans eru birtir í Stjórnartíðindunum, svo þar sje hægt að sjá þetta. En þetta er ekki eins einfalt og í fljótu bragði getur virst, því ekki eru allir vissir um, hvar ljeð er, hvernig það er trygt, og hvort hægt er að grípa til þess hve nær sem er.
Ýmsar kviksögur hafa gengið um þetta, sjerstaklega það, hvort fjeð er handbært, þegar til kemur, og sagt hefir verið, að í sumt af fjenu væri ekki hægt að ná í fljótu bragði, nema sjóðurinn biði tjón, og alt væri ekki sem tryggast. Samkvæmt reikningnum er mikill hluti sjóðsins í fasteignalánum. Á því hefir marga furðað, því að samkvæmt gjafabrjefinu átti hann aðallega að geymast í ríkisskuldabrjefum. Þótt einhver hluti hans hafi ef til vill upphaflega verið í fasteignalánum, þá hafir sú upphæð hækkað ár frá ári, og er það einkum af þessari ástæðu, að menn hafa dregið í efa, að fjeð væri handbært og nægilega trygt. Það má harla einkennilegt heita, að sjóðurinn skuli þannig notaður sem fasteignabanki, og mjög vafasamt, hvort stjórnarráðið hefir nokkurt leyfi. til þess. Allur þessi orðrómur um meðferð sjóðsins, óskirnar um að vita hverjar heimildir væru fyrir slíkum útlánum, hefir komið mjer til að spyrja, hvar sjóðurinn sje og hve mikið af honum sje handbært.
Næsta spurningin er, hvort sjóður þessi sje orðinn nægilega stór, til þess að geta tekið til starfa. Jeg þarf ekki að fjölyrða mikið um þá spurningu, því að hún er sprottin af því, að menn þekkja ekki ákvæði gjafabrjefsins og halda að framkvæmdirnar sjeu dregnar of lengi, en á Vesturlandi er, eins og jeg hefi þegar tekið fram, vaknaður brennandi áhugi og ósk eftir því, að þetta ákvæði gjafabrjefsins komist til framkvæmda sem allra fyrst.
Þriðja spurningin er þá, hver ráði, hvar hinn fyrirhugaði skóli verði settur, og hvernig fyrirkomulag hans verði. Það hefir verið mikið rætt um það á öllu Vesturlandi; hver myndi ráða skólastaðnum. Flestir hafa álitið, að það yrði stjórnarráðið, en að það mundi leita álits sýslunefndanna á Vesturlandi. Út af þessu hafa verið tilnefndir fjöldamargir staðir, en auðvitað verður það að fara eftir fyrirkomulagi skólans, hvar hann verður. Eins og menn vita, hefir töluvert verið talað um það, að stúlkur þyrftu að búa sig undir það; að verða sveitakonur, eins og piltum er kent í bændaskólunum, að verða sveitabændur. Mörg orð hafa verið töluð um húsmæðraskóla þar sem stúlkum væri ekki einungis kent að elda sæmilega góðan mat, heldur ýmislegt fleira, sem konum í sveit getur komið að góðu haldi að kunna. Fáir munu hugsa sje slíkan skóla annarstaðar en í sveit. Og þetta er einmitt það, sem fjöldi manna hefir verið að vonast eftir, að Herdísarskólinn yrði húsmæðraskóli í sveit, og jafnvel verið farnir að ganga að því vísu, að fyrirkomnlag hans yrði á þenna veg, sem jeg hefi á minst. Af því að þessu hefir verið slegið föstu meðal manna, verður ekki um eins marga staði að ræða og ella myndi. Ýmsir staðir hafa þó verið nefndir, en oftast Ólafsdalur.
Jeg ætla hjer ekki að færa rök fyrir því, að þessi staður sje heppilegastur. En það hefir gjört marga ákafa eftir því, að vita um framkvæmdir málsins, að nú stendur alveg sjerstaklega á með Ólafsdal. Nú er sagt, að hægt sje að fá hann keyptan fyrir lítið verð, sem ekki er einu sinni fyrir húsunum, hvað þá heldur jörðinni. (Ráðherra: Hvað kallar þm. lítið verð?) Lítið verð kalla jeg fyrst og fremst það, sem jeg áðan sagði, ef jörðin fæst sjálf fyrir ekki neitt, sem jeg vona að hæstv. ráðherra hafi heyrt, þó hann spyrji svona undarlega, en eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið, mundi verðið. verða um 18000 kr. Allir vita, sem til þekkja, að hús öll í Ólafsdal eru í ágætu standi, og myndi litlu þurfa við þau að bæta, til þess að skóli gæti þar tekið til starfa. Þetta hefir ýtt undir menn, svo að þeir eru fýknari en áður í að vita, hvort Herdísarsjóðurinn er þess megnugur að kaupa jörðina. Jeg gjöri ráð fyrir, að svarið verði neitandi, Þótt það komi ekki beinlínis málinu við, vil jeg koma með aðra spurningu: Er það nokkur fyrirhyggja, að landssjóður kaupi ekki jörðina? Er það fyrirhyggja, að sleppa henni til einstakra manns, sem ef til vill nota hana til gróðabralls? Ef hún síðar meir kynni að verða dæmd ómissandi eða mjög hentugt skólasetur. Þá yrði það skaði fyrir landið, ef landssjóður vildi kaupa hana síðar meir. Jeg giska á, að þessi spurning muni vakna hjá mörgum, ef hinni fyrri, um að Herdísarsjóðurinn kaupi hann, verður svarað neitandi.
Jeg þarf ekki að tala lengra mál um þetta, því að málið er nógu ljóst, og jeg sje líka að þingdeildarmenn eru farnir að gjörast óþreyjufullir. Jeg spyr því fyrir hönd fjölda margra kjósenda, ekki að eins í mínu kjördæmi, heldur víðar um Vestfirðingafjórðung: Hver ræður, hvar skólinn verður hafður, hvort hann verður húsmæðraskóli í sveit og hvort Ólafsdalur verður skólasetrið. Jeg vona að hæstv. ráðherra svari þessum spurningum.