14.09.1915
Efri deild: 62. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)
157. mál, áfengisbirgðir landsjóðs
Ráðherra:
Háttv. fyrirspyrjandi spyr fyrst, hve mikið áfengi landssjóður eigi nú. Áður en jeg svara því beint, vil jeg víkja nokkurum orðum að, á hvern hátt sje hugsanlegt að landssjóður eignist áfengi nú. Í fyrsta lagi er það leyfilegt að flytja inn vín handa læknum, kirkjum og iðnaðarfyrirtækjum, en nú getur svo farið, að það sje ekki hirt á rjettum tíma, en samkvæmt 4. gr. bannlaganna verður notandi að hafa vitjað þess innan 12 mánaða, ella verður það eign landssjóðs. Þetta er fyrsti vegurinn fyrir landssjóð að eignast áfengi.
Í öðru lagi getur landssjóður, samkvæmt 6. gr. bannlaganna, orðið vineigandi á þann hátt, að skip strandar. Ef skip, sem vín er í, strandar, og eigandi kýs ekki að sjer sje sent það innan 12 mánaða, verður það eign landssjóðs.
Í þriðja lagi, ef vínsalar hafa átt vínbirgðir þegar bannlögin gengu í gildi, og hafa eigi skeytt að flytja það af landi burt innan 12 mánaða, þá verður það eign landssjóðs.
Loks er síðasti hátturinn, sem flestir munu hafa í hug, og það er, ef einhver frómur náungi fær sjer á pytluna og laumar henni í land. Um það sje jeg engin ákvæði í lögunum. En líklega á að fara með þau eftir analogiu 35. gr. almennra hegningarlaga. Þar er ákveðið, að öll tæki eða áhöld, sem notuð eru til lögbrots, eða efni eða gróði, sem aflað er með lögbroti, skulu upptæk gjör og eign landssjóðs. Eins mun vera í þessu tilfelli.
Í lögum er ekki gjörð grein fyrir, hvað gjört skuli við þessa eign landssjóðs.
Þá skal jeg víkja aftur að fyrirspurn háttv. þm. Seyðf. (K. H.), sem má skifta í 4 hluta.
Fyrsti er, hve mikið áfengi landssjóður eigi. Jeg get ekki svarað því til hlítar, jeg hefi að vísu sent beiðni til lögreglustjóra á landinu um, að gefa upplýsingar því viðvíkjandi, en svörin eru ekki komin enn, því að tíminn hefir verið of stuttur. Jeg hefi þó fengið svar frá einum, bæjarfógetanum í Reykjavík, þar sem víst er mest af áfengi, og úr því að háttv. þm. Seyðf. (K. F.) langar til að heyra um það, skal jeg með leyfi háttv. forseta lesa svarið, sem er á þessa leið:
„Samkvæmt hæstv. brjefi hins háa stjórnarráðs í dag, hefi jeg látið athuga áfengi það, sem er í vörslum lögreglunnar hjer, og leyfi jeg mjer hjer með virðingarfylst að tilkynna hinu háa stjórnararráði, að áfengið er sem hjer segir:
23 flöskur á 3/4 liters af akvavit
2 — — — — — caloric punch
13 — — — — — whisky
6 — — — — — cognac
6 — — — — — rommi
74 smáflöskur af whisky, á að giska ½ peli hver
6 smáflöskur af akvavit, á að giska 1/8 peli hver.
2 anker af brennivíni, sem næst 40 lítra hvort og hjer um bil full.
23 hálfflöskur af Carlsberg Pilsner.
Loks eru 2 whiskyflöskur með slöttum í.
Um gæði áfengis þessa er mjer eigi kunnugt, og get því ekkert um verðmæti þess sagt, enda er það að mínu áliti extra commercium“.
(Sigurður Stefánsson : Hvar er það geymt?). Það er geymt hjer í hegningarhúsinu. Þetta hefir að vísu verið gjört upptækt.
Þá drap háttv. fyrirspyrjandi á, hvort landssjóður ætti eigi innflutt áfengi. Jeg hefi fengið vitneskju um það hjá landritara, því að jeg er því eigi kunnugur, og fengið að vita, að hjá landritara er geymt:
235 flöskur champagne
42 — rínarvín
74 — rauðvín
11 — cognak (Hennessy).
Þetta áfengi mun hafa verið keypt 1912, en það þori jeg þó ekki að fullyrða, og það átti að geymast í alveg ákveðnum löglegum tilgangi, sem þm. mun kunnugt um. (Guðmundur Björnson: Og best er að tala sem fæst um).
Það hefir ekki verið talið saman, hve mikið áfengi landssjóður á, en það virðist mega ráða það af skýrslu bæjarfógeta, að heldur sje fátt um fína drætti. (Jón Þorkelsson: Það læt jeg vera). Jeg gjöri ráð fyrir; að eitthvað sje til víðar, t. d. í Vestmannaeyjum og á Akureyri og ef til vill á Ísafirði, Seyðisfirði og víðar. Þá er svarað 1. og 2. spurningunni.
Þá spyr háttv. fyrirspyrjandi, hvers virði það áfengi sje, sem er landssjóðs eign. Eins og jeg hefi lesið upp, álítur bæjarfógeti eða umboðsmaður hans, að áfengið sje extra commercium, eigi ekki að vera á boðstólum eða til sölu, og sje því verðlaust meðan það er í landinu. Jeg býst við, að það hafi ekki verið tilætlun löggjafans, þegar hann setti lögin 1909, að vín, sem er landssjóðs eign, yrði selt í landinu.
Hvorki samkvæmt 2., 6. eða 9. gr. bannlaganna. verður það sjeð, að ætlast hafi verið til, að þessi vökvi gengi kaupum og sölum í landinu, heldur er gjört ráð fyrir, að hann verði geymdur, svo menn geti ekki svalað þorsta sínum á þann hátt. Það er því ekki hægt að selja þenna vökva á uppboði, eins og aðrar upptækar vörur. Samkvæmt einu ákvæði í bannlögunum er ekki heldur leyfilegt að flytja aðrar áfengisbirgðir milli bæja eða staða en þær, sem nota á til lækninga, kirkju eða iðnaðar. En ef það er selt á uppboði, þarf að flytja það, því að ósanngjarnt er að ætlast til, að hæstbjóðandi drekki alt, sem hann kaupir, á staðnum. Það er því útilokað, að leyfilegt sje að selja það.
Þá spurði háttv. fyrirspyrjandi, hvað ætti að gjöra við það. Jeg þykist hafa í öðru þarfara að snúast, en að hugsa um þenna vökva nú. Hann er geymdur hjá lögreglunni, og því vel geymdur.
Spurningin verður því um tvent. Það mætti flytja það út úr landinu þangað, sem hægt er að selja það. Jeg býst við, að það verð, sem fyrir það fengist, yrði ekki hátt, því að þetta áfengi hefir víst ekki kostað mikið, þar sem það var keypt, því að mest er það brennivín og svo lítið eitt af cognak, rommi og whisky. Mundi því eigi borga sig, að flytja það út. Eftir er þá að hella því niður. Og það tel jeg lögum samkvæmast um það, sem upptækt hefir verið gjört.
Háttv. 5. kgk. þm. (G. B.) getur sjálfsagt gefið fræðslu um það, hvort viðlit sje að nota það til lækninga eða iðnaðar. Og ekkert á móti, að fá að heyra álit fleiri háttv. þm. um það, hvernig fara skuli um þessar vínbirgðir, sem upptækar hafa verið gjörðar.