04.09.1915
Efri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (11)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Hákon Kristófersson. Jeg á eina breytingartillögu við þenna kafla fjárlaganna. Hún er á þingskjali 714 og fer að vísu í hækkunar átt. Er hún viðkomandi Breiðafjarðarbátnum. Þegar háttv. strandferðanefnd hafði þetta mál til meðferðar, þá lá annað fyrir viðvíkjandi þessum bát, en nú er komið á daginn, og var því álitið að 9000 kr. mundu nægja. Fjárlaganefnd neðri deildar hefir lagt til að það fje verði veitt og háttv. fjárlaganefnd efri deildar hefir látið það standa. Nú hefir verið stofnað hlutafjelag til að kaupa bát til þessara ferða, ekki einungis um Breiðafjörð, heldur er ætlast til að hann geti gengið lengra bæði norður og suður; sjerstaklega er ætlast til að hann fari suður á bóginn til Skóganess og Búða. Þegar þetta fjelag, sem gengst nú fyrir kaupum á nýjum bát, var stofnað, taldi það vit að meiri styrkur mundi fást en veittur var í síðustu fjárlögum, af því að þingið hafði látið í ljós, að það mundi fúst til að styrkja þessar ferðir meira, ef ekki ættu bátinn einstakir menn, sem notuðu hann í sínar eigin þarfir. Bæði hv. fjárlaganefnd og hv. deild er kunnugt um að þessi bátur muni verða nokkuð dýr og að sýslurnar muni muni ekki geta lagt út í þetta, nema landssjóður veiti ríflegan styrk til fyrirtækisins. Jeg hefi því farið fram á að styrkurinn verði hækkaður upp í 12 þúsund kr. Hefði jeg helst viljað fara fram á 15 þús. kr., en af sparnaðar ástæðum fór jeg ekki lengra en þetta, sem er það minsta, sem um getur verið að ræða, þar sem þetta á að skiftast á milli 2 báta. Jeg hefi vissa von um, ef úr framkvæmdum verður með þessi bátskaup, að hann fari 2–3 ferðir, sem nothæfar geti orðið fyrir okkur Barðstrendinga, og er það lífsskilyrði fyrir okkur. Jeg man ekki hvað áætlað er að þessi bátur muni kosta, en mig minnir að það sjeu um 40 þús. kr. Framkvæmdarstjóri Eimskipafjelagsins hefir tekið að sér að útvega bátinn, og má því vænta að það verði vel af hendi leyst. Jeg vona að háttv. deild geti orðið með þessari breytingu, því að mjer sýnist hún sjálfsögð með tilliti til ákvæða þingsins 1913 og þess, að fjelag er myndað í því trausti, að þingið veiti ríflegan fjárstyrk til fyrirtækisins. Jeg vil geta þess, að það er ekki víst, að strandferðaskipin fáist til að koma við á Gilsfirði, og þó þau komi þar við, tel jeg óþarft að þau komi þar oftar en tvisvar á ári, ef svo stór bátur fæst til flóaferða, sem jeg vona að verði, ef deildin sjer fært að veita þá upphæð, sem jeg hafi farið fram á, en að öðrum kosti sjer félagið sjer ekki fært að ráðast í þetta fyrirtæki. Jeg vona að þetta mál sje nú orðið svo ljóst fyrir háttv. deild, að jeg þurfi ekki að tala frekar og að hv. deild samþykki svo sanngjarna tillögu.

Um aðrar breytingar mun jeg sýna með atkvæði mínu hvernig jeg lít á þær.