16.08.1915
Neðri deild: 34. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (1113)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Ráðherra :

Það er eðlilegt, að Alþingi vilji fá skýrslu um störf þessarar nefndar. Eins og háttv. þm. S.-M. (Þ. B.) tók fram, þá lýsti jeg því yfir um daginn, að slík skýrsla mundi bráð. lega koma. Jeg get nú upplýst háttv. þm. (Þ. B.) um það, að skýrslan liggur hreinskrifuð fyrir nú og er að eins eftir að prenta hana.