16.08.1915
Neðri deild: 34. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (1122)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Sigurður Eggerz :

Jeg vildi mega bæta dálitlu við, út af því, sem háttv. þm. Ak. (M. K.) sagði um Hrafnagilsmálið. Hann talaði um að matsmenn kynnu að vera ekki vel valdir, og fanst mjer sem í þessu lægi ákúra til stjórnarinnar. Það vita nú allir, að ráðherrann velur ekki þessa menn, heldur viðkomandi sýslumaður, og jeg hefi ekki ástæðu til að ætla að þeir sjeu ekki góðir, og það liggur í hlutarins eðli, að stjórnin verður að fara eftir því, sem þeir segja. Þeir staðfesta gjörðir sínar með eiði, en hins vegar er ekki hægt heimta að stjórnin þekki allar jarðir.

Jeg man til þess, að fyrir 2–3 árum var Munkaþverá í Eyjafirði seld fyrir mjög líkt verð og Hrafnagil. Það getur nú verið, að Espihóll hafi verið seldur hærra verði, en það getur líka verið að sú sala hafi verið eins og stundum á sjer stað hjer við Reykjavík, að verðið sje mest nafnið tómt, eða einhver »speculation«. En þar sem jeg nú hafði fyrir mjer bæði orð landritara og mat eiðavarinna manna, þá var síst ástæða fyrir mig að fara að tortryggja orð þeirra. Jeg þekki ekki matamenn í Eyjafirði, en eg gjöri ráð fyrir, að sýslumaður hafi ekki valið til þess aðra en valinkunna heiðursmenn, og það þykir og hefir ætíð þótt hart, að vjefengja eiðavarna menn. Auk þess hafði jeg talað við biskup, og það er talið óhyggilegt að veita prestakallalán, þar sem svo stendur á, að jörðin er óheppileg til að vera prestssetur framvegis. Það eru líka til fordæmi fyrir því, að jarðir hafa fljótt hækkað ákaflega frá söluverði þegar farið hefir verið að »speculera« með þær. T. d. þekki jeg eina vestur Mýrum, sem seld var fyrir 3600 kr.,

og voru strax á eftir boðin í hana 7000. — Jeg get alls ekki munað söluverðið, sem hjer er um að ræða, en trúi því, sem háttv. þm. Dal. segir um það. En hitt held jeg fast við, að salan hafi fram farið eftir venjulegum reglum og mati.