20.08.1915
Neðri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Jón Magnússon:
Jeg er alveg samdóma hæstv. forseta um það, að það sje brot á þingsköpunum að haga þessu eins og verið hefir. Með því móti tala margir þingmenn oftar en tvisvar í sömu umræðu, þó að þeir sjeu ekki framsögumenn. Að minsta kosti er sjálfsagt að gjöra það með afbrigðum frá þingsköpunum. Annars fæ jeg ekki skilið það, að þingmenn fái ekki nógu glögt yfirlit yfir fjárlögin, þó að þau sjeu tekin fyrir í einu lagi, og að þingmennirnir sjeu ekki færir um að muna það, sem sagt hefir verið, er harla ótrúlegt.