20.08.1915
Neðri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Sigurður Sigurðsson :
Hjer í lestrarsalnum hefir legið frammi beiðni frá Páli Guðmundssyni á Hjálmstöðum í Laugardal, þar sem hann fer fram á, að honum verði veittur styrkur af landasjóði, til þess að koma á heilsuhæli ytra vitfirringi eða fábjána, sem hann á. Ástæður þessa manns eru erfiðar, eins og lesa má í vottorði, sem beiðninni fylgir frá hreppstjóranum í Laugardalshreppi. Hann er barnamaður mikill, og misti konuna fyrir rúmu ári síðan. Þetta barn, sem hann sækir um styrkinn fyrir, er elsta barn hans, og er það, eins og gefur að skilja, tilfinnanlegt fyrir bláfátækan barnamann, að elsta barnið skuli vera óhæft til allrar vinnu, og meira en það. Heimilisástæðurnar eru mjög erfiðar, og það því fremur, sem manninum gengur illa að halda stúlku til að hirða þenna vesaling, og er hann því tíðum mannlaus með barnahópinn.
Fjárlaganefndin hefir ekki tekið afstöðu til þessarar beiðni Páls, en leyfði mjer hins vegar að bera fram brtt. í þessa átt. Að því er mjer skildist, lagði háttv. framam. (P. J.) ekki á móti henni.
Tillaga mín á þgskj. 348 fer fram á, að styrkur verði veittur, 400 kr. hvort árið, til þess að koma sjúklingnum Oddnýju Pálsdóttur á »den gellerske Anstalt« í Kaupmannahöfn. Í þessu sambandi vil jeg minna á, að það er ekkert einsdæmi, sem hjer er um að ræða. Hjer höfum við fordæmi fyrir okkur. Á aukaþinginu 1902 var heitið styrk í fjáraukalögum, sem þá lágu fyrir þinginu og samþykt voru, til manns í því skyni að koma barni hans á stofnun þessa í Kaupmannahöfn. Þessi styrkur var síðan endurveittur meðan sjúklingurinn lifði, eða fram að árinu 1909. Þetta er alveg samhliða dæmi því, sem hjer liggur fyrir. Auk þess hefir þingið iðulega hlaupið undir bagga með fátækum foreldrum, til þess að gjöra þeim það kleift, að koma börnum sínum til lækninga erlendis, þegar þess hefir ekki verið kostur að fá mein þeirra bætt hjer á neinn hátt Þannig er í fjáraukalögunum fyrir 1914 og 1915 veittur styrkur, að upphæð kr. 684,71, til þess að kosta dreng á ljóslækningastofnun Finsens í Kaupmannahöfn. Og um allmörg ár hafa blind börn verið styrkt til að vera í skólum erlendis, þar sem þau gátu numið handavinnu, meðan engin stofnum var til hjer á landi, sem þau gátu gengið á og lært þess konar hluti. Jeg vænti að þessi viðaukatill. mín fái góðar undirtektir.
Jeg skal minna á, að hjer á landi munu að vísu vera margir slíkir vesalingar, sem hjer um ræðir, og mætti því ef til vill búast við, að fleiri kæmu á eftir með svipaðar styrkbeiðnir. Samkvæmt manntali 1910 voru hjer um 85 fábjánar, og flestir þeirra unglingar eða börn, enda segja fróðir menn, að mjög fátt af slíku fólki nái háum aldri. Flestir verða ekki eldri en 10–20 ára. Sjúkdómnum er þannig háttað, að flestir, sem hafa hann verða skammlífir, til þess að gjöra.
Fjárlaganefndin minti mig á, að þessum sjúklingi ætti að koma fyrir á Kleppi. En bæði er það, að þangað komast ekki allir, sem nauðsynlegt væri að þangað flyttust, og eins býst jeg við, að læknirinn þar taki ekki þangað sams konar sjúklinga og hjer um ræðir, með öðrum orðum, ekki þá, sem fæddir eru fábjánar. Það er því ekki í önnur hús að venda til að koma af sjer slíkum aumingjum en að reyna að koma þeim fyrir á erlendum lækninga- eða hjúkrunarstofnunum. En þegar fátæklingar eiga í hlut, sem ekki rísa undir þeim kostnaði, sem af því leiðir, þá er ekki nema eðlilegt, að leitað sje á náðir þingsins í því efni.
Jeg vænti að allir háttv. deildarmenn sjái, að öll sanngirni mælir með því, að sinna þessari beiðni. Og jeg vænti þess, að þeir, sem ekki hafa kynt sjer málið, gjöri það nú. Öll plögg, sem að því láta, eru hjá mjer, og getur hver, sem þess óskar, fengið þau til yfirlesturs. Málaleitanir þær, sem til þingsins koma, eru flestar lagðar fram í lestrarsalinn, til þess að þingmönnum gefist kostur á að kynna sjer þær. En hversu margar af þessum málaleitunum eru alment lesnar; það væri fróðlegt að vita. Jeg hygg, að óhætt sje að fullyrða, Að þær fari fyrir ofan garð eða neðan hjá flestum þingmönnum, nema þeim, sem þær eru beinlínis afhentar til yfirlesturs. Og afleiðingin er sú, að þegar til þess kemur að greiða atkvæði um þær, eða brtt. sem á þeim eru bygðar eða við þær miðaðar, þá hafa menn alment ekki hugmynd um, hvað um er verið að ræða, og greiða þar af leiðandi atkvæði í blindni, hvort sem þeir segja já, eða nei.
Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta atriði, en víkja örfáum orðum að annari viðaukatill.,sem við höfum flutt hv. 1. þm. G.-K. (B. K.) og jeg. Þessi till. er á þgskj 333. Háttv. meðflutningsmaður minn (B. K.) hefir gjört svo glöggva grein fyrir því máli, að jeg hefi þar litlu við að bæta. Þó get jeg gefið þær upplýsingar, að Þingvallasveit heyrði áður undir Kjósarumdæmi, meðan læknirinn sat í Kjósinni, en þegar bústað hana var breytt, var hún tekin undan og lögð við Skálholtsumdæmi. Nú er það svo, eins og háttv. meðflutningsm. minn (B. K.) gat um, að það er oft mjög miklum erfiðleikum bundið, og jafnvel frágangasök fyrir Þingvallasveitarmenn, að leita læknis að Skálholti yfir torfærur og vegleysur. En annars er ekki kostur, nema þá að fara til Reykjavíkur eða Eyrarbakka, sem ekki er síður erfitt.
Í sambandi við þær viðaukatillögur, sem fram hafa komið um það, að veita einstökum hreppum styrk til að leita læknis, skal jeg geta þess, að mjer virðist nauðsynlegt, eins og líka einhver mintist á, að það sje athugað, hvort betur mundi svara kostnaði, að fjölga læknisumdæmunum eða styrkja einstaka hreppa, sem harðast verða úti í þessu efni, til að leita læknis. Nú er alllangt síðan þingið byrjaði að veita styrk í þessu skyni. Og úr því það hefir einu sinni sagt a, þá býst jeg við að það eigi erfitt með að láta þar við sitja, og ef það vill vera sjálfu sjer samkvæmt og sýna rjettlæti í gjörðum sínum, þá verði það líka að segja b. Hitt er annað mál, og þarf nauðsynlega að athugast, hvort rjettara er, þegar á alt er litið, bæði á kostnaðarhliðina og fleira, að bæta við nýjum læknisumdæmum, eða heita einstökum hreppum, sem erfiðast eiga aðstöðu, styrk, til þess að vitja læknis.
Jeg skal fúslega játa, að sumar aðrar tillögur um þetta efni eiga töluverðan rjett á sjer. (Ráðherra: Ekki nema töluverðan?). Þó vil jeg taka undir með háttv. meðflutningsmanni mínum (B. K.), að ef til vill á tillaga okkar á þgskj. 333 forgangsrjettinn, svo að fremur bæri að taka hana til greina en hinar, án þess þó að jeg vilji á nokkurn hátt leggja stein í götu þeirra, því að eina og jeg gat um, eiga þær einnig töluverðan rjett á sjer, sumar þeirra að minsta kosti.
Annara væri full ástæða til að koma á þessu þingi fram með þingaályktunartillögu um að skora á stjórnina að taka af nýju læknaskipunarlögin til endurskoðunar, og í sambandi við það einmitt þetta atriði, styrkveitingar til einstakra hreppa til að leita læknis.