20.08.1915
Neðri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (1146)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Guðmundur Hannesson:

Jeg verð að segja, þó að jeg síst ætti að spilla því, að menn geti leitað sjer læknishjálpar, að brýn nauðsyn ber til að athuga vel þessa spurningu, hvort heppilegt sje að veita einstökum hreppum styrk til að vitja læknis. Það er ekki svo að skilja, að jeg sjái ekki, að mikið mælir með því, að hjálpa þeim hreppum, sem verst eru settir í þessu efni. En jeg lít svo á, að þingið hafi ekki svo hugsað, sem vert er, hversu margir hreppar eru á landinu, sem jafnilla eru settir að þessu og þeir, sem hjer er um að ræða. Því að ef styrkur er veittur tveimur, þremur eða fjórum hreppum, þá er erfitt fyrir þingið að neita öðrum hreppum um styrk, sem hafa alveg sömu ástæður fram að bera, og þær jafngildar. Það virðist næstum óhjákvæmilegt að draga það, að ganga lengra út á þessa braut, þangað til öll heildin hefir verið athuguð. Fyrir norðan, þar sem jeg þekki best til, veit jeg um marga hreppa, sem hafa jafnmikla sanngirniskröfu til að verða styrks aðnjótandi í þessu skyni, eins og þeir hreppar, sem hjer er sótt um styrk fyrir. Af þeim hreppum, sem þegar hafa verið teknir í fjárlögin, er að eins einn hreppur, sem mjer virðist vafasamt um að beri slíkur styrkur. Það er Bolungarvík. Vegalengdin þaðan og til læknisins er svo stutt, að í öðrum hjeruðum, sem jeg þekki til, mundi sú vegalengd vera talin einskis virði. Eg skal taka það fram, að jeg er ekki kunnugur þar vestur frá, en miða að eina við vegalengdina eins og hún er sýnd á kortinu.

Mjer hefir dottið í hug önnur leið í þessu máli, og hún er sú, að þeir hreppar, sem eiga erfitt með að ná til læknis, kæmu á fót hjá sjer sjúkrasamlögum. Jeg get ekki sagt með vissu, hve miklu sjúkrasamlagsstyrkur landsjóðs mundi nema, fyrir þessa þrjá hreppa í Snæfellsnessýslu, sem farið er fram á að styrktir sjeu, til þess að leita læknis. Í hreppum þessum eru um 600 íbúar.

Vitaskuld nær landsjóðagjaldið ekki til allrar þeirrar höðatölu, en óhætt mun að gjöra ráð fyrir, að það nemi 200– 300 kr., og er þar komin ámóta upphæð og hjer er farið fram á, án þess að nýja fjárveitingu þyrfti til.

Annar liður er það í þeim kafla fjárlaganna, sem nú er til umræðu, sem vel gæti verið, að jeg leyfði mjer að koma síðar fram með brtt. við. Það er liðurinn um utanfararstyrk lækna. Það er fullkunnugt, að læknar sækjast mikið eftir að fá þenna litla styrk, sem þó hvergi nærri hrekkur til þess, að standast þann kostnað, sem af því leiðir, að fara utan, til þess að afla sjer fræðslu. Þörfin á utanferðum lækna er gífurlega mikil, ekki síst fyrir þá, sem eru í afskektum og fámennum hjeruðum og hafa þar af leiðandi litla æfingu. Og utanferðirðar eru ekki að eins nauðsynlegar fyrir læknana sjálfa, heldur jafnframt, eða jafnvel miklu fremur, fyrir almenning, því að svo best hefir hann gagn af læknunum, að þeir sjeu vel að sjer í sinni ment. Mjer er kunnugt um, að læknar þeir, sem utan hafa farið, hafa notað sjer förina mjög vel. Sumir þeirra hafa jafnvel lesið með sama kappi, eins og þeir væru að lesa undir próf, til þess að hafa sem mest upp úr ferðinni. Nú er að opnast nýr vegur fyrir læknana, til þess að rifja upp fræði sín og fylgjast með nýjungunum í ment sinni, og hann er sá, að dvelja hjer í Reykjavík um tíma. Sjerfræðingar eru hjer orðnir margir og sjúklingafjöldinn eykst ár frá ári. Dvöl hjer í Reykjavík mundi verða stórum ódýrari en utanför, og býst jeg við að hvorttveggja verði notað jöfnum höndum í framtíðinni.