20.08.1915
Neðri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í B-deild Alþingistíðinda. (1154)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Sigurður Eggerz:

Fyrir hönd strandferðanefndarinnar lýsi jeg yfir því, að hún tekur aftur brtt. þær, er hún hefir komið fram með. Nefndin hefir enn ekki getað lagt fram álit sitt í þessu vandasama og flókna máli. Tekur hún það nú fyrir, vegna breyttra atvika, til nýrrar íhugunar og leggur fram álit sitt og væntanlegar brtt. ekki fyrr en við 3. umræðu fjárlaganna.