21.08.1915
Neðri deild: 39. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (1165)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Guðmundur Eggerz:

Jeg ætla að taka í sama strenginn og háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.), að mjer þykir leitt, að háttv. fjárlaganefnd hefir felt niður fjárveitingar til vitabygginga. Jeg lít þannig á, að síst hefði átt að taka þá stefnu að spara fjárveitingar undir þessum lið. Að minsta kosti tel jeg vitann á Malarrifi mjög nauðsynlegan. Eins og kunnugt er, hafa skip, er fara vestur og norður um land, eða þá þau, er koma að norðan, mikið gagn af þessum vita. Sömuleiðis hafa skip þau, sem koma sunnan með landi, gagn af vitunum, er Reykjanessvitanum sleppir, með því að þá yrði minni hætta á því, að þau lendi norður á Mýrunum, sem oft vill verða. Líka er það, að undir Jökli eru mörg fiskiskip, sem hafast þar við nálega allan ársins tíma.

Jeg bendi á þetta, til þess að sýna fram á, að frá sjónarmiði sjómannastjettarinnar er nauðsyn á, að þessi viti sje í sem bestu lagi, en til þess að tekjuhallinn aukist ekki, mun jeg gjöra brtt. um að fella burtu fjárveitinguna í 13. gr. B. III. til Langadalsvegar, 7000 kr. hvort árið.

Jeg veit að engum manni blandast hugur um, að vitabyggingar eru lífsnauðsyn fyrir sjómenn vora, og því ekki hægt að bera þenna veg í Húnavatnssýslu saman við þær, sjerstaklega þar sem skiftar skoðanir eru um það, hvort halda eigi áfram með þenna veg, eins og nú er ætlast til. Jeg vil geta þess, að sýslunefnd í Skagafjarðarsýslu hefir óskað, að stjórnin ljeti athuga annað vegarstæði, nefnilega frá Blönduósi um Kolugafjall að Sauðárkróki. Sýslunefndin áleit að þetta gæti orðið heppilegt, af því að vegurinn yrði þá að mun styttri. Auðvitað skal jeg játa, að með þessu lagi yrði vegurinn lagður yfir fjall, en á síðastliðnum vetri var gjörð snjómæling þarna á fjallinu, og þótti víst ekki bein ástæða til að óttast of mikil fannalög.

Þar sem því þannig stendur á, að ekki er enn rannsakað til hlítar, hvar heppilegast verður að leggja veginn, þá virðist ekki miklu vera slept, þó að þessi fjárveiting væri feld niður á þessu fjárhagstímabili. Ef svo fullnaðarrannsókn um þetta vegarstæði — hvort vegurinn skyldi heldur liggja frá Blönduósi um Kolugafjall til Sauðárkróks, eða fram Langadal yfir Vatnaskarð að Víðimýri og þaðan út á Sauðárkrók — kæmi fram á næsta fjárlagaþingi, þá mætti að sjálfsögðu taka veg þenna af nýju upp í fjárlögin.

Út frá þessu, er jeg nú hefi sagt, mun jeg koma fram með breytingartillögu við 3. umræðu fjárlaganna, er fari í þá átt, að þessi fjárveiting verði feld, en Malarrifsvitinn verði tekinn upp í fjárlögin. Og vænti jeg þess, að allir, er bera hag sjómannastjettarinnar fyrir brjósti, greiði atkvæði sitt með þeirri breytingartillögu, þar sem hún að eins fer fram á það, að þessi viti; sem öll sanngirni mælir með að verði bygður, sitji fyrir vegi, sem óvíst er, hvort haldið verður áfram eins og nú horfir við. Jeg álít að sjómannastjettinni væri annars gjört mjög rangt til. Og flestir munu kannast við það, að betra sje að fara um illan veg, en að sigla í myrkri úti á hafi eða velkjast nálægt brimgörðum, án þess að neitt sje til að sýna mönnum, hvar þeir sjeu staddir.