21.08.1915
Neðri deild: 39. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (1173)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Einar Jónsson :
Jeg hafði ekki ætlað mjer að lengja umræðurnar. En ummæli háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) gefa mjer tilefni til að standa upp. Það er svo ástatt, að nafn mitt er bundið við eina þá brtt., sem komið hefir fram hjer í deildinni. Sú tillaga er reyndar stór, en hún er samt sem áður ekki óþörf. Mjer þótti háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) tala af allmiklum ókunnugleik, þegar hann hjelt því fram, að hægt væri að brúa Jökulsá á Sólheimasandi fyrir einar 20 þús. kr., og að sú brú geti gjört sama gagn eins og 78 þús. kr. brú. Jeg get vel búist við að þetta mál sje öllum svo ljóst, eftir allar þær upplýsingar og umræður, sem um það hafa komið fram að undanförnu, að ekki sje þörf á að skýra það frekar í þetta sinn. Þó vil jeg geta þess, fyrir þá, sem ekki hafa sjeð uppdrátt þann, sem gjörður hefir verið af hinni fyrirhuguðu brú, að svo er til ætlast, að steinstöplar verði bygðir sinn hvorum megin við hvern ál, og svo tengdir saman með steinbogum. Ef nú yrði bygð brú, sem kostaði 20 þúsund kr., þá nægði það einungis til þess að brúa einn einasta ál, hinir yrðu þá eftir sem áður óbrúaðir. Þetta væri auðvitað betra en engin brú, því venjulega er austasti állinn verstur og yrði væntanlega brúaður fyrst, en þó er við það að athuga það, að slík brú kæmi að engu haldi, ef vöxtur væri svo mikill í ánni, að ófærir væru hinir grynnri álarnir. Það fá af þessu allir sjeð, að tal háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) um brú á Jökulsá fyrir 20 þús. kr. er ekki annað en fálm út í loftið; hún kæmi ekki að hálfum notum.
Annars hefi jeg litlu við það að bæta, sem háttv. þm. V.-Sk. (S. E.) sagði um þenna lið fjárlaganna. Jeg er honum í öllum atriðum sammála. Áin, sem hjer ræðir um, er háski mikill öllum, sem yfir hana eiga að sækja; það vita allir, enda er það margviðurkent af þinginu, að þessi brúarbygging sje hið mesta nauðsynjamál. Hinu hefir verið haldið fram, að áin myndi taka af í stórhlaupum hvaða brú sem væri. Jeg sje ekki ástæðu til að óttast þetta svo mjög. Jeg býst ekki við, að steyptir steinstöplar standist öllu verr hlaup í ánni en steinar þeir, sem nefndir eru Stórusteinar, sem staðist hafa öll hlaup í ánni nú um marga áratugi, og eru þó ekki stærri um sig en svo, að ætlast mætti til, að vel væri kleift að hafa steypta stöpla jafn öfluga. Hefi jeg áður lýst þessum Stórusteinum og fleiri staðhátt. um við Jökulsá, og endurtek það ekki í þetta sinn.
Jeg skal svo ekki fjölyrða um þetta mál. Jeg veit það með vissu, að hver, sem greiðir atkvæði með brúnni, hann gjörir guði og samvisku sinni þægt verk. (Hannes Hafstein : Ekki guði, því þá fær hann færri menn en áður.). Jeg hefi aldrei heyrt það af guði, að manndráp væru honum þóknanleg, svo að brúin gæti verið honum til óþæginda.