23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Sveinn Björnsson:

Þetta er í fyrsta sinn, sem jeg tek til máls við þessa umr. fjárlaganna, og nú er orðið áliðið, svo að jeg mun reyna að tala stutt, enda stendur svo á, að jeg hefi ekki neitt að flytja fyrir mitt kjördæmi, en ræður flestra háttv. þm. hafa hnigið í þá átt, að útvega kjördæmum sínum eitthvað.

Jeg skal fyrst geta þess, að jeg hefði óskað, að deildin hefði tekið meira tillit til þess, sem fjárlaganefnd hefir lagt til en raun er á orðin. Jeg hefi heyrt það á flestum, að eins og ástandið er nú, þá færi best á því, að fjárlögin yrðu afgreidd tekjuhallalítið, eða tekjuhallalaust. Og jeg er á því,. að ef sú verður reyndin á, að hallinn verði töluvert mikill, þá sje ekki annað fyrir stafni en að allmargar athugasemdir verði að gjöra við ýmsa liði, líkar þeirri, sem nefndin hefir nú gjört við 13. gr. 3. lið, eða með öðrum orðum, að ýmsar fjárveitingarnar verði sama sem engar fjárveitingar, þar sem það verði stjórninni í sjálfs vald sett, eftir kringumstæðum, hvort þær koma til framkvæmda eða ekki. Þessa athugasemd vildi jeg gjöra nú þegar, en að svo mæltu, skal jeg snúa mjer að örfám einstökum liðum.

Mig furðar á áhuga tveggja hv. fjárlaganefndarmanna (S. S. og E. P.) á því, að víkja frá till. nefndarinnar um styrkinn til búnaðarfjelaganna. Jeg leit svo á, að það hefði orðið samkomulag í nefndinni, að fella nú þenna styrk burt í þetta skifti með sjerstöku tilliti til ástandsins, sem nú er, enda var grein um þetta í nefndarálitinu. Þess vegna voru mjer það vonbrigði, þegar tveir menn úr nefndinni rísa nú hjer upp og leggja afar mikið kapp á það, að þessi sparnaðartillaga verði ekki samþykt, og segi jeg þetta því fremur, sem það heyrðist bæði í nefndinni og utan nefndar, að gagnið að þessum styrk myndi ekki vera jafn mikið og margir hjeldu. Og jeg hefi einnig átt tal um þetta við bændur, og ber mikið á því, að þeir töldu gagnið, sem að honum væri, ekki svara til fjárhæðarinnar.

Þá hafa heyrst raddir um það, að rjett væri að spara það fje, sem nefndin hefir lagt til að veitt verði til þess, að reisa hús yfir listaverk Einars Jónssonar. En sú fjárveiting er bein afleiðing af því, að þingið hefir lýst yfir því, að það vilji taka við þessari gjöf. Það væri lítill sómi fyrir þingið, að sjá ekki þessu safni fyrir sæmilegu húsnæði, svo að það liggi ekki undir skemdum, heldur eiga það lengur á hættu, að það misfarist ef til vill í öðru landi, fyrir handvömm, úr því að upphæðin er þá ekki heldur meiri.

Þá skal jeg minnast lítið eitt á till, um það, að fella þær 18 þús. kr., sem ætlaðar voru til undirbúnings járnbrautarmálinu, og skal jeg þó ekki fara langt úti það, svo seint. Eins og menn vita, hefir staðið deila um það mál, aðallega milli tveggja manna, og munu fleiri en jeg hafa lesið skrif þeirra með athygli og þó án þess að sannfærast — má ske á hvoruga hlið. En þetta mál er svo stórt, að ekki hæfir að ganga þegjandi fram hjá því, og jeg fyrir mitt leyti hefi nú þá trú, að landið sje svo gott, og svo margt sje hægt að gjöra því til bóta, að það geti borið annað betra en vegaspottana, sem um það liggja nú. Að minsta kosti hefir nauðsynin og reynslan kent mönnum það í öðrum löndum, þar sem víðátta er mikil, að þeir verði að fá sjer eitthvað betra, til þess að koma löndunum í vöxt og blóma. Og ef menn hafa ekki trú á því, að slíkt blessist hjer eins og þar, þá er það af því, að þeir hafa ekki trú á landinu sjálfu. — Nú kunna einhverjir að segja, að þá vanti að vísu ekki trúna á landið, en að ástæðurnar mæli með því, að fresta þessu máli nú. En á síðasta fjárlagaþingi kom fram þessi sama uppástunga um fjárveitingu, og var einmitt ætlast til þess, að fjeð gengi til þess, að rannsaka hvort eigi myndi borga sig betur að hafa rafmagn fyrir hreyfiafl, og átti þá einkum að rannsaka Sogsfossana. Og jeg fyrir mitt leyti álít, að það atriði sje svo mikilvægt, að þetta, að fá þessa fossa rannsakaða, megi ekki bíða nema sem allra minst, svo grundvöllur fáist fyrir viðleitni til að halda þessum fossum í eigu landsins. Annars hygg jeg að muni fara svo, að vjer vöknum upp við vondan draum, þegar vjer erum búnir að missa till »hvítu kolin«. Þess vegna vil jeg ekki láta fresta þessu máli, ekki einu sinni nú í þetta sinn.

Þá er brtt. við 16. gr. 20, um að Heimilsiðnaðarfjelagi Íslands verði veittar 1000 kr. hvort árið, í stað 500 kr. Raddir hafa heyrst á móti þessu, en jeg hygg að það sje rjett hjá háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.), að það er enginn efi á því, að hjer er að byrja það, sem vel getur orðið stórmál áður en nokkurn varir. Menn vita það, að hjer hefir lengi áður verið heimilisiðnaður, sem bæði hefir gefið þeim atvinnu, sem lítið hafa haft að stunda og svo ætíð nokkurn ágóða í aðra hönd, og þetta er ekki þýðingarlaust fyrir okkar land, þar sem þarf að nota kraftana til einhvers, þegar ekki er hægt að vinna það, sem þarfast þykir. Og það er nærri sama hvað þá er lítið í aðra hönd, því að þá er þó ætíð í því annars konar gróði, sá, að hafa eitthvað fyrir stafni. Háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.) var að tala um fitl. Jú, það er fitl að prjóna sokk eða vetling, en það er nú gott samt. Jeg veit nú ekki hve mikil áhersla er lögð á það í heimilisiðnaðarfjelaginu að prjóna, en það er ýmislegt, því skylt, sem þar er unnið, og þótt ekki kunni að vera mikill gróði að því að sinni, sem þar er kent, af smíðum o. fl., þá getur það átt framtíð fyrir sjer, engu síður en í Noregi, Sviss og víðar.

Jeg skal nú ekki orðlengja mikið úr þessu. Eins og jeg gat um í upphafi, þá þykir mjer það mjög miður fara, þegar 7 menn hafa varið mjög miklum hluta af þingtímanum og vinnu sinni í það, að setja sig inn í fjárlögin, að þá skuli þeir ekki standa saman um heildartillögur nefndarinnar, en það er nú einu sinni svo, að ýmsir háttv. nefndarmenn álíta sig ekki bundna við það, en hafa áskilið sjer ágreiningsatkvæði um ýmislegt. Jeg mun nú fyrir mitt leyti ekki greiða atkvæði á móti nefndinni, en eins og er, þá álít jeg mjer hitt heimilt, ef jeg vil sýna einhverri fjárveitingu valvild mína, að gjöra það þá með því, að greiða ekki atkv., þó að nefndin sje því mótfallin.