23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Framsögum. (Pjetur Jónsson):
Það var að eins örstutt athugasemd út af ræðu hæstv. ráðherra og orðum hans viðvíkjandi Stórstúkunni. Það, sem sagt er í nefndarálitinu um þenna styrk, er þetta:
»Stórstúka Goodtempara-sótti um 2000 kr. styrk hvort árið, til þess að styðja að því, að bannlögin sjeu haldin, og að fyrirbyggja með öllu heiðarlegu móti, að þau verði afnumin. Meiri hluti nefndarinnar vill sinna beiðni þessari að nokkru, og leggur nefndin. því til að 1000 kr. sjeu veittar hvort árið«.
Á þessum orðum sjest, að í nefndarálitinu eru eigi færðar ástæður frá nefndinni fyrir styrk þessum, heldur að eins úr umsókninni.
Jeg skal játa það, að ágreiningur varð um það í nefndinni, hvort þetta skyldi veita ellegar ekki, en aðalmeðmælandi var háttv. 1. þm. G. K (B. K.) en ekki jeg, og veit jeg því ekki nákvæmlega um tilgang meiri hluta nefndarinnar.
Þá er Miklavatnsáveitan, sem jeg vildi minnast lítillega á. Jeg mundi ekki áðan, að tillagan var komin frá stjórninni en ekki nefndinni. Í nefndarálitinu segir svo um þetta mál:
«Þótt nefndin hafi ekki viljað leggja það til, að fjárveitingin falli burt, þá er hún engan veginn laus við allan geig við þetta fyrirtæki, vegna þeirrar reynslu, sem þegar er fengin. En nefndin verður að treysta landstjórninni og verkfræðingunum til þess, að hjer verði ekki lagt í nýjan kostnað, nema full trygging sje fyrir því, að nægilegt vatn fáist, og tilraunin um not jökulvatnsáveitu nái tilgangi sínum«.
Þetta sýnir ljóst afstöðu nefndarinnar. Þá skal jeg geta þess, út af skáldstyrknum, að nefndin taldi upp í nefndarálitinu þessi skáld, einungis af því, að þessir menn hafa staðið í fjárlögunum nú í mörg ár, og nefndin taldi ekki rjett að svifta þá þessum styrk, sem þeir hafa haft.
Þegar hjer var komið umræðum, var nóttu nokkuð betur komið en á óttu, og bar forseti þá upp ósk um að slíta umræðum þá þegar, er honum hafði borist frá Sveini Björnssyni, Einari Jónssyni, Jóni Jónssyni, Sigurði Sigurðssyni, Pjetri Jónssyni og Þórarni Benediktssyni. Var hún feld með 10:9 atkv. að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu
já:
nei:
Björn Hallsson,
Bened. Sveinsson,
Eggert Pálsson,
Bjarni Jónsson,
Einar Jónsson,
Einar Arnórsson,
Jón Jónsson,
Guðm. Hannesson,
Magnús Kristjánss.,
Jóhann Eyjólfsson,
Pjetur Jónsson,
Matth. Ólafsson,
Sig. Sigurðsson,
Sigurður Eggerz,
Sveinn Björnsson,
Sig. Gunnarsson,
Þór. Benediktsson.
Stef. Stefánsson,
Þorleifur Jónsson.
Sex þingmenn voru fjarstaddir.