28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (1204)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Framsögum. (Pjetur Jónsson) :
Það þarf ekki mikið að ræða um áhrif þau; er meðferð háttv. deildar við 2. umr. hefir haft á fjárlögin; það verður undir eins sjeð á tekjuhallanum í 20. gr. Það er auðsætt, að tilraunir fjárlaganefndarinnar í þá átt, að minka tekjuhallann, hafa algjörlega mishepnast. Það er eins og vant er, vandratað meðalhófið. Niðurstaðan er nú orðin sú, að tekjuhallinn fyrir þetta fjárhagstímabil er kominn upp í 300,000 kr., í staðinn fyrir að nefndin vildi koma honum niður í 110,000 kr. Háttv. deild hefir með þessu ruglað tilgangi nefndarinnar og störfum nefndarinnar að nokkru leyti. Því þegar það, sem hún vildi leggja til í sparnaðaráttina, er að vísu felt, en talsvert þó samþykt og svo síðan ýmislegt annað sett í staðinn, er nefndinni sýndist sem mætti án vera frekar en hitt, sem hún lagði til, að klipið væri af, þá er það ekkert annað en að rugla gjörðum hennar og gjöra starf hennar gagnslaust.
Það sem lýsir sjer í þessu er það, að vantað hefir samhug í deildinni til að ná ákveðnu marki í sparnaðaráttina. Ekki er það þó algjörlega viljaleysi að kenna, því að það hefir komið í ljós vilji til sparnaðar hjá ýmsum, eða viljar, en viljarnir hafa ekki fylgst að, og menn hafa ekki viljað leggja neitt í sölurnar til að ná markinu, — tekist illa að vilja hið sama. Það eru þessir smáviljar, þessar persónulegu smá sannfæringar á stærð við fingurbjörg eða asklok, sem borið hefir á, en stórhug og stóran vilja hefir vantað. Það, sem nú átti að vaka fyrir mönnum, var það, að vera við búnir erfiðum kringumstæðum og hættulegum tímum, og láta sjer lynda að ýmsu væri frestað til betri tíma. Þessi sameiginlega hugsun hefði átt að grípa menn nú, að sínu leyti öldungis eins og stórhugurinn til framsóknar grípur menn stundum. Því það er engu síður nauðsynlegt, að menn sameini sig til varnar en til framsóknar. Ef menn geta ekki sameinað sig til varnar, þá er ekki heldur að vænta þess, þegar sækja á fram.
Maður skyldi ætla, að háttv. þingdeildarmenn hefðu svalað sjer við 2. umræðu þessa máls, en því virðist ekki að heilsa, þar sem nú eru komnar fram 60–70 nýjar brtt., eða fleiri. Jeg hefi ekki komið tölu á þær. Þessar brtt. nema samtals 146–148 þús. kr. til hækkunar útgjaldanna, en alt að 120 þús. kr. til lækkunar. Ef taka mætti eins mikið mark á lækkunartill. og hækkunartill., þá væri ekki um mikið að sakast. Mismunurinn er þá ekki svo stór og fólginn í lögbundnum útgjöldum, 30 þús. kr. til landhelgissjóðs. Má þá segja, að lækkanir og hækkanir stæðust á. En lækkunartillögurnar eru víst fremur marklitlar, eftir þeirri reynslu, sem fengin er áður, bæði nú og fyrri.
Jeg ætla fyrst að minnast á brtt. nefndarinnar. Þar standast hækkunar- og lækkunartill. nokkuð á, ef lögbundna upphæðin (Landhelgissjóðurinn) er frádregin. Því miður munu háttv. þingdeildarmenn ekki hafa lesið framhaldsnefndarálitið, svo jeg ætla mjer að rekja það upp hjer.
Fjárlaganefndin hefir lagt til, að fjárveitingin til nýrra símalagninga verði 50 þús. kr. hvort árið, í stað 49500 kr. fyrra árið og 50 þús. kr. síðara árið. Það mætti ætla, ef upphæðinni fyrra árið væri svona nákvæmlega hagað, að stjórnin væri þá skuldbundin til að verja þessari fjárveitingu til alveg ákveðinna síma, en nefndin leit svo á, að fleiri símar stæðu jafnfætis en komið gæti til mála að lagðir yrðu fyrra árið, og því vill hún leggja það á vald stjórnarinnar, að greiða úr því, hvernig símalagningunni verði raðað. Fyrirheit síðasta Alþingis um símalagningar 1916 nemur alls 90 þús. kr., að frádregnu tillagi hjeraðanna, sem lesa má í Alþtíð. 1914 A. bls. 597. Þar er þó slept einum síma, Grenivíkursímanum, sem ekki getur komið til mála að fresta aftur fyrir hina, eins og brjef landssímastjórana ber með sjer. Það er því um 100 þús. kr., sem þarf til að fullnægja fyrirheitinu. Nú verða það að eins 100 þús. kr. bæði árin, sem veitt verður eftir tillögu nefndarinnar, og þó með undanþágu. Það verður því stjórnarinnar, að ráða fram úr málinu á sem sanngjarnastan hátt.
Önnur brtt. nefndarinnar er um vitana. Hún leit svo á, að úr því ekki væri hægt að spara fje til vita, þá sje rjettast að láta þá alla standa jafnfætis. Hún leggur því til, að allir sömu vitar sjeu teknir upp, sem í stjórnarfrumvarpinu voru, en að sama gildi um vitana og símana, að þeir verði ekki bygðir nema fjárhagurinn leyfi. Nefndin hefir ekki viljað áætla neitt fje til reksturskostnaðar hinna nýju vita. Fyrst og fremst af því, að óvíst er að þeir verði bygðir, og í öðru lagi af því, að það liggur í augum uppi, að stjórnin hlýtur að hafa heimild til að taka fje til reksturs þeirra vita, sem bygðir eru.
Þá leggur nefndin til, að tímakenslufjeð við Kennaraskólann í Reykjavík sje aukið um 800 kr. fyrra árið. Er það gjört í því skyni, að dr. Björn Bjarnason, sem nú dvelur erlendis, heilsulítill, og sem vonlítið er um að geti komið heim að svo komnu, fái að halda embætti sínu og launum næsta ár. Birni hefir verið leyft að halda kennaraembættinu, ef hann setti mann í sinn stað við kensluna. Nú stendur svo á, að sá maður, magister Sigurður Guðmundsson, sem hefir haft kensluna á hendi að undanförnu og leyst starfið prýðilega af hendi, vill ekki una sama kaupi og áður. Skólastjóri vill ekki með nokkru móti missa Sigurð frá skólanum, og nefndin hefir fallist á, að þingið ætti bæði að stuðla að því, að skólinn hefði reyndan kennara og að Björn Bjarnason þyrfti eigi að borga þessa millibilskenslu hærra en að undanförnu, og þykir tilvinnandi að hlaupa undir bagga með 800 kr. fjárveitingu.
Nefndinni hafði borist erindi frá þingmönnum N.-Múlasýslu um aukinn styrk til Búnaðarskólana á Eiðum. Reglugjörð skólans hefir verið breytt svo, að meiri kensla er nauðsynleg. Auk þess hafa laun kennara skólans verið hækkuð, og dýrtíðin kemur niður á honum eins og öðrum. Nefndin hefir því fallist á að hækka styrkinn úr 2500 kr. upp í 3000 kr.
Þá vill nefndin bæta þeirri athugasemd aftan við 14. gr. B. XII. 2, að ef fje það, sem veitt er í núgildandi fjárlögum til styrktar barnaskólabyggingum utan kaupstaða, verði eigi notuð til fulls, þá skuli stjórninni heimilt að veita það á næsta fjárhagstímabili í sama augnamiði. Ráðherra skýrði nefndinni frá, að 12–14 þús. kr. mundi vera óeytt í lok yfirstandandi fjárhagstímabils. Þótti nefndinni rjett að heimila að nota þetta fje næsta fjárhagstímabil, þar sem feldur var úr fjárlagafrumv. við 2. umr. 15000 kr. styrkur hvort árið í þessu augnamiði, og það gæti stungið óþægilega í stúf, ef alveg væri tekið fyrir styrkveiting í þessu skyni.
Nefndin vill veita Samúel Eggertssyni 1000 kr. næsta ár, til þess að gjöra landslagsuppdrætti af Íslandi. Háttv. þm. eru kunnar tilraunir Samúels til að gjöra uppdrætti, til að skýra stigu og landafræði Íslands. Hefir hann sýnt í því mikla elju og ástundun, og er því alls góðs maklegur. Hann hefir fengið meðmæli fræðslumálastjórans, sem telur mikla þörf á góðu landlagskorti við kenslu barna og unglinga og ber gott traust til Samúels, til þess að leysa það verk sæmilega af hendi.
Enn fremur leggur nefndin það til, að herra Aage Meyer Benediktsen sje veittur 500 kr. styrkur til að gefa út á dönsku ritgjörð Guðmundar Björnsonar landlæknis um þjóðfána, sem prentuð er í fánabókinni. Kunnugt er að brytt hafi á talsverðum misskilningi í Danmörku um fánamál vort, og því virðist nefndinni þarft verk að koma ritgjörðinni út á dönsku.
Það hefir verið siður í meira en 20 ár, að veita 2 dýralæknaefnum styrk á ári. Styrkur þessi hefir að vísu ekki alt af verið notaður árlega. En þar sem litlar eða engar líkur eru til að hjer verði fleiri en 4 dýralæknisembætti, eitt í hverjum landsfjórðungi, og útlit fyrir að bráðum fáist nægir útlærðir menn í þau, þá er auðsætt, að ekki er nauðsynlegt að halda áfram að styrkja tvo menn til náms á ári. Það mundu þá brátt verða of margir menn í þeirri stjett. Nefndinni sýnist því hæfilegt að að eina einn maður sje styrktur til náms á ári. Þetta hefir þó ekki verulega fjárhagslega þýðingu nú. Eins og stendur eru tveir menn við nám og verða næstu ár. Nefndin leggur því til, að styrkur til dýralækninganáms sje síðara árið miðaður við einn nemanda, til merkis um að svo verði framvegis.
Þá vill nefndin lækka styrkinn til bryggju í Búðardal. Nefndin hefir fengið upplýsingar um það frá landsverkfræðing, að hann hafi að eins munnlega lagt ráð á um veggjagjörð bryggjunnar, og sömuleiðis hefir nefndin fengið upplýsingar frá formanni kaupfjelagsins, að bryggjan kosti um 2800 kr. Sjest á þessu, að styrkur sá, 2000 kr., sem samþyktur var við 2. umr., hefir verið æði mikið út í bláinn, og að það er ekki ósanngjörn krafa, þegar fjárlaganefndin í upphafi heimtaði, að ákveðin skilríki lægi fyrir um bryggju þessa, lýsing, áætlun o fl. Það var hreinasta tilviljun, að þessar upplýsingar komu meðan þingið stóð yfir. Nefndin telur nóg, að þingið styrki bryggjugjörð þessa með 1000 kr.
Við 18. gr. vill nefndin gjöra þá breytingu, að feld sje burtu orðin »viðbót við eftirlaun prestsekkju Ástu Þórarinsdóttur 129,94 kr.«. Í efri deild hefir sú athugasemd verið tekin í frumv. til fjáraukalaga fyrir árin 1914 og 1915, að eftirlaun nefndrar ekkju skuli reiknast 300 kr. Ef þessi orð stæðu eftir sem áður í 18. gr. fjárlaganna, mætti ef til skoða það svo, að þessa, 129,94 kr. væru viðbót við 300 kr. eftirlaun, en það er ekki til þess ætlast, og því telur nefndin rjett, að fella þessa fjárveitingu burtu þar sem hún stendur.
Loks hefir nefndin fallist á, að heimila stjórninni að veita Jósef Blöndal 6000 kr. lán úr viðlagasjóði til byggingar steinsteypuhúsa í Siglufirði. Þar er símastöð og póstafgreiðsla, og maðurinn hefir ráðist í að byggja húsið, af því hann hefir þessi störf á hendi. Á húsinu hvíla, nú 4500 kr. með 1. veðrjetti, en nefndin væntir þess, að hreppsnefnd Hvanneyrarhrepps taki að sjer ábyrgð á láninu, að svo miklu leyti sem 2. veðrjettur í húsinu yrði ekki nægilegur. Þessi lánveitingarheimild sætir auðvitað sömu lögum og aðrar lánveitingaheimildir úr viðlagasjóði, að hún kemur ekki til framkvæmda, nema fje sje fyrir hendi.
3. brtt. á þgskj. 583 er ekki annað en leiðrjetting á prentvillu í frv. Þar stendur 500 kr., en á að vera 400 kr.
Sömuleiðis hefir slæðst inn prentvilla í 14. gr. B. I. a. — Þar stendur 40,100 kr. — á að vera 41 þús. kr.
Þá vil jeg benda á 14. gr. B. VI. 1. c. Þar hefir smíðakenslan orðið tvöföld í roðinu. Þar stendur bæði 600 og 800 kr., en tilætlunin var að eins sú, að hækka 600 kr., sem áður voru, upp í 800 kr. hvort árið.
Við læknastyrkinn til Borgfirðinga, eystra, vill nefndin setja þá skýringu í athugasemd, sem virðist sjálfsögð, að styrkurinn falli burtu, ef læknir verður settur eða skipaður í Hróarstunguhjerað. Enn fremur vill nefndin setja almenna athugasemd um alla þessa styrki, þess efnis, að stjórninni sje gjörð skilagrein fyrir því árlega, hvernig styrknum sje varið. Minna má það ekki vera.
Þá kemur nefndin fram með brtt. um það, að fella niður styrkinn til búnaðarfjelaganna annað árið. Gjörir hún það til þess að ná dálítið í áttina þeim tilgangi, er hún hafði með brtt. sinni við 2. umr., er fjell þá. Hún leit svo á, að það þyrfti ekki mikla sjálfsafneitun til þess að vera án þessa styrka svona í bili, þar sem að eins er um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, en landssjóði þörf á sparnaði. Jeg lít dálítið öðru vísi á þetta mál en aðrir háttv. nefndarmenn. Mjer virðist það tilgangslítið, að nema þennan styrk burtu, fyrst það er ekki gjört bæði árin. Það hefði verið bændum til mestrar sæmdar, möglunarlaust og þegjandi, að taka sjer svona lítið í mein, til þess að bæta úr vandræðum landsins.
Jeg hefi áður minst á landhelgissjóðinn, að rjett sje að setja fjárveitinguna, sem lögbundin er til hans — þessar 20 þús. kr. — í fjárlögin, og þarf jeg því ekki að fara frekari orðum um það.
Viðvíkjandi eftirlitinu og framkvæmd á ullarmatslögunum, hefir það komið í ljós, að 1200 kr. er oflítið fje — ómögulegt að fá menn fyrir svo lítið. Nefndin leggur því til, að sú upphæð sje hækkuð upp í 1500 kr.
Þá hefir nefndin komið fram með viðaukatillögu, viðvíkjandi fjárveitingunni til þess að ryðja vörina við Ingólfshöfða. Hún vill bæta þeirri athugasemd við liðinn, að fjeð verði því að eina veitt, að orð landsverkfræðings fáist fyrir því, að fjeð komi að fullum notum. Verkfræðingur hefir aldrei rannsakað þetta til hlítar, og þykir nefndinni það miður farið, en vildi samt ekki hindra það, að þessi styrkur yrði veittur, ef vissa væri fengin fyrir því, að hann kæmi að tilætluðum notum.
Þá hefi jeg farið yfir brtt. nefndarinnar á þgskj. 583.
Þá hefir nefndin komið fram með brtt. á þgskj. 617, eftir umtali við 2. umr. Hún hallaðist að því, að leggjast ekki á móti, að fjárveitingin til Blönduóssbryggjunnar yrði samþykt, með því móti, að styrkurinn til Langadalsvegarins fjelli niður annað árið. Það er fram komin brtt. um að nema veginn burtu bæði árin, en nefndin getur ekki fallist á hana, en leggur til, að fella hann burtu annað árið.
Þá hefir nefndin lagt það til, að skálda- og listamannastyrkurinn verði færður niður í 11 þús. kr. fyrra árið og 10 þús. kr. seinna árið. Þetta eina þúsund, sem fram yfir er fyrra árið, er endurveiting til Ríkarðs Jónssonar, því hann getur ekki notað styrk þann, er honum var veittur í núgildandi fjárlögum. Aftur á móti álítur nefndin nægilegt, að 10 þús. kr. sjeu veittar í listamannastyrk árlega.
Seinni liðurinn á þingskjalinu er viðvíkjandi kenslu í hraðritun. Nefndin hafði lagt það til við 2. umræðu, að ákveðnum manni væri veittur styrkur í þessu skyni. En við nánari athugun kom hik á hana, hvort ekki væri eins rjett að veita öðrum manni, Helga Tómassyni, þenna styrk. Hún tók því tillöguna aftur við þá umræðu. Henni er áhugamál, að þessi kensla komist á, en getur ekki dæmt um það, hvort kerfið er betra, það sem Helgi Tómasson eða Vilhelm Jakobsson hefir lært. Þess vegna vill hún ekki binda þessa fjárveiting við ákveðið nafn, en leggur það til, að stjórnin hafi frjálsar hendur til ráðstöfunar í þessu efni, svo hún geti valið um. Jeg hefi nú talað alllangt mál, og ætla ekki að halda lengur áfram að sinni. Jeg hefi ekki minst á aðrar brtt. en nefndarinnar; ætla að bíða átekta með þær, þangað til flutningsmennirnir hafa gjört grein fyrir þeim. Sjálfur á jeg breytingartill. á þgskj. 620, en mun minnast á hana síðar, og þá jafnframt brtt. einstakra manna.